[ Dagbókin hans Pésa ]

 

þriðjudagur, maí 11, 2004

k?rb?tur p?nktur net

þriðjudagur, mars 02, 2004

Komiði öll sömul margblessuð og sæl. Ég var að setja inn fleiri myndir og má eiga von á fleiri myndum á næstunni. Við vorum nebblega að framkalla 4 filmur í dag og aldrei að vita nema nokkrar útvaldar úr þeim búnka endi hérna á síðunni. Ég hvet alla til að fylgjast vel með og tékka á þessu reglulega. Eitt að lokum...Tékkið á lagi með Brain Police sem heitir Johnny Babas. Það er gargandi bringuhársþenslurokk!

laugardagur, febrúar 21, 2004

bla bla bal

fimmtudagur, febrúar 19, 2004

Jæja..þá er kominn vefþjónn í Engjaselið. Fylgist með á heimasíðunni okkar til að fá upplýsingar um nýja lénið.

miðvikudagur, febrúar 18, 2004

Hei...tékkið á plötunni með The darkness! Mikil snilld. Og svo er Korn að koma til landsins. Það eru rokkarar dauðans. Væri gaman að kíkja á þá. Annars gerðist svosem ekki mikið í dag. Bara vinna og sona. Var hinsvegar búinn soldið snemma þannig að maður kíkti í Medal of honor á netinu. Það er alltaf jafnhressandi. Svo er bara árshátíð hjá Hagstofunni um helgina. Það gæti nú orðið stuð ef að ég endist lengur en til kl 23:00. Þannig endaði það seinast. Það er sona þegar það er ókeypis áfengi. Þá er bara látið vaða. Þetta er sona.

þriðjudagur, febrúar 17, 2004

Halló allir. Held að allir séu hressir með það að ég hef ákveðið að segja nokkur vel valin orð hérna í kvöld. Snúum okkur að málefnum líðandi stundar. Hendum Impregilo útúr landinu. Hálfvitar upptil hópa sem borga ekki skatta og önnur gjöld. Hvað er að? Er ekki hægt að skikka þessa menn til að haga sér? Það virðist ekki vera. Og Árni Johnsen. Stórkostleg listaverk sem hann sýndi með pompi og pragt einhversstaðar um daginn þar sem fjölmenni var við opnun. Gamlir flokksbræður voru 90% af þessu fjölmenni. Frábært! Hann ætti frekar að klífa Everest eða taka 250 kg í bekkpressu. Þá yrði ég hrifinn. En því er ekki að heilsa. Ég hef heyrt því fleygt að U2 sé að koma og ætli að halda tónleika í Egilshöll í Grafarvogi. Ég er að spá í að tjalda núna fyrir utan. Bara til að vera viss. Djöfuls snilld væri það! Þeir færu létt með að fylla húsið tvisvar ef ekki þrisvar. Ég myndi fara í öll skiptin. En þetta er nú bara eitthvað sem ég heyrði. Meira um þetta skúbb þegar ég frétti meira. Núna er Heiða að elda svínahakkbollur. Selska. Ég er einmitt alveg massa svangur núna. Heppilegt! Held að Árni Gautur eigi eftir að taka þetta markvarðardæmi með algjöru trompi. Hann er eiginlega búinn að því. En hann á eftir að toppa þetta. Þetta er svo hrikalega góður markvörður. En svona eitt að lokum. Tékkið á þessu!

sunnudagur, febrúar 15, 2004

Jájá.. Allir hressir bara? Ég er allavega þokkalega hress. Var að vinna um helgina. Það var fínt. Ekkert merkilegt gerðist svosem. Allir bara fullir og sona. Það er nú slæmt þegar maður er að synda og getur átt von á því að fá glerþak í hausinn. Þetta fékk fólk í útlöndum að reyna. Já...þeir kunna ekki smíða almennileg hús í Ungverjalandi. Ónei! Hef komist að því að Helgi Hóseason er mikill snillingur, og að ég held, misskilinn mjög. Hann er einmitt í sjónvarpinu núna. Haldiði ekki að stjörnuleikurinn í NBA er í kvöld? Væri gaman að sjá hann. Þessa stundina er komið mikið lag á nýju heimasíðuna okkar sem í þetta skiptið verður hýst hérna í Engjaselinu. Tíminn mun svo leiða í ljós hvaða lén verður notað, það er að segja ef að Björn Görn fer ekki að gaspra eitthvað hérna í kommentinu.

föstudagur, febrúar 13, 2004

Jæja...server mál kominn í lag hérna í Engjaselinu. Allt í blússandi fínum málum og núna er bara að dúndra upp heimasíðunni.

fimmtudagur, febrúar 05, 2004

Jæja...Myndin búin og verð ég að segja að ég bjóst við allt öðruvísi mynd. Þetta var svona soldið listræn mynd. Rosaflott...neita því ekki...en ég bjóst við grínmynd með Bill Murray. Hún er fyndin á köflum en svona allajafna er hún mjög róleg. Ágæt alveg hreint. Mér tókst náttlega að sofna svolítið. Kæmi mér ekki á óvart ef að ég myndi sofa af mér þriðju heimsstyrjöldina. Það væri nú saga til næsta.

Jæja...ég er búinn að komast að því hvað var málið með bloggfærslurnar mínar. Hver nennir að blogga þegar viðkomandi er búinn að skrifa massa mikið.....svo frýs bloggtakkinn!!!!! Og ekkert blogg kemur inn hjá manni. Það verður bara til þess að maður nennir ekki að blogga. En ég er ekki af baki dottinn! Ónei! Þýðir eitthvað að vera með eitthvað djöfuls væl og aumingjaskap? NEI segi ég! Segi það og skrifa og stend við það heilshugar af öllu hjarta! Hei...verð að segja eitt
um þessa tónleika sem voru á Næsta bar í gærkvöldi. Ég var eitthvað neikvæður útí þetta allt saman. En þegar á hólminn var komið voru þetta snilldartónleikar. Andrea Gylfa er svakalega söngkona í einu orði sagt. Þetta var massa snilld. En hvað um það. Við erum að fara í bíó í kvöld að sjá Lost in translation. Held að hún sé snilld. Allavega er hún tilnefnd til 4 óskara. Ég læt ykkur vita hvernig hún er! Bæ öll sömul...

miðvikudagur, febrúar 04, 2004

Daginn hérna. Held að ég sé að verða vitlaus. Blogga bara 2svar í röð. Þetta er magnað helvíti. Vitiði hvað? Ég er að fara að passa í kvöld. Einhverjir helvítis tónleikar á næsta bar. Alltaf hressandi að fá ekkert að sofa. Það held ég. Spurning hvort við komumst í Bárðardalinn. Veltur allt á veðri og færð. Kannski að veðurguðirnir margfrægu verði góðir við okkur, en ef þeir verða óðir....þá er voðinn vís. Kannski verða þeir móðir...þá geta þeir ekkert. Eitt er víst að þeir eru fróðir. Stundum stíga þeir á glóðir. Djöfull er þessu lagi með Kalla Bjarna nauðgað í útvarpinu. Sérstaklega á Bylgjunni. Talandi um Bylgjuna. Hvað haldiði að ég hafi nælt mér í dag? Jú einmitt....ég fékk mér sílíkon í rasskinnarnar. Nei....ég nældi mér í bíómiða. Aldrei þessu vant tók ég upp símtólið, hringdi inn, þeir svöruðu og ég var 2mur bíómiðum ríkari. Og svona í restina ætla ég að koma með massaskúbb.
Ég var að keyra út í morgun og þurfti að fara í DAS Laugarási. Kom á staðinn og bankaði á eldhúsdyrnar og hver haldiði að hafi opnað???? (trommusláttur).........GEIRI SÆM!! Svona er poppheimurinn harður. Menn þurfa að sjóða slátur handa öldruðum sjómönnum til að hafa í sig og á...

þriðjudagur, febrúar 03, 2004

Allir síkvartandi. Ekki stundarfriður hérna. Þið verðið að afsaka hvað ég er latur við þetta. Stundum koma dagar þar sem ég hreinlega nenni þessu ekki. Maður er þreyttur (latur) þegar maður kemur heim úr vinnunni og sona. En hei....Tékkið á baggalúti á Rás 2. ALGJÖR SNILLD! Reiði veðurfræðingurinn er það besta sem ég hef heyrt. Endilega skoðið þetta. Nafli er lok fyrir ástand í alheimsvanda úti sem og Gabríel. Þetta er fleyg setning sem ég mana fólk til að taka sér í munn við hin ýmsu tækifæri. Takk fyrir mig.

þriðjudagur, janúar 27, 2004

Jæja...ég hef ákveðið að láta undan þrýstingi og blogga meira. Strákarnir okkar skitu á sig á EM. Punktur. Núna eru Svíar og Króatar að spila. Króar eru að hafa þetta. Sem betur fer. Þoli ekki Svía. 13 - 9 fyrir Króa. Við eigum bara eftir að standa okkur vel á Ólympíuleikunum í staðinn. Við eigum alltaf gott mót eftir vondu móti. Það er alveg vitað mál. Nóg um handbolta. Ekkert hefur drifið á daga mína uppá síðkastið. Jú...fór í afmæli til Birkis Tjörva. Mikið stuð þar og mér tókst að sofna EKKI í sófanum hjá Kollu og Palla. Það var ekki skrýtið. Einmitt þá voru Íslendingar að klúðra leiknum á móti einhverju skítaliði. Nenni ekki að muna hverjir það voru. Jájá...

þriðjudagur, janúar 20, 2004

Jæja...Lagt var af stað frá Reykjavík á föstudegi um 1/2 fimm leytið. Við vorum varla komin að Bláfjallaafleggjara þegar skall á vitlaust veður. Við sáum ekki útúr augum og allstaðar voru menn að stoppa og hætta við. EN EKKI VIÐ! Við vorum staðráðin í að komast í bústaðinn. Ekki skánaði það austan við fjall. Beygt var út af þjóðvegi 1 og í áttina að Laugarvatni. Þar tók ekki betra við. Hálka og snjókoma. Svo var farin lengri leið að bústaðnum vegna ófullnægjandi upplýsinga. Keyrðum svo framhjá skilti sem sneri frá okkur og ákváðum við að stoppaog athuga þetta skilti betur. Og viti menn... Á því stóð Reykjaskógur. Mikil fagnaðarlæti brutust út í bílnum. Þarna var bústaðalandið fundið. Beygðum af veginum og keyrðum inní landið. Skaflar og skafrenningur og ekkert sást. Stoppuðum þar sem við héldum að bústaðurinn væri. Unnur og Heiða fóru út að prófa lykilinn á nokkrum bústöðum. Ég sat í bílnum á meðan og svipaðist um. Sá ég allt í einu rofa fyrir húsi sem ekkert ljós var í. Ákváðum að prófa þann bústað og keyrðum aðeins lengra. Kom þá í ljós skilti sem á stóð FSS. Þar var bústaðurinn fundinn og ferðalangarnir trylltust af fögnuði. Við komum okkur fyrir og opnuðum bjórinn. Fengum óskemmtilega hringingu frá Bjarna og Ingu. Þau höfðu lent útaf á leiðinni til okkar. Bændur frá Svínavatni mættu á svæðið og kipptu þeim upp á veg. Svo mættu þau á svæðið og allir í góðu stuði. Daginn eftir var allt á kafi í snjó og við þurftum að fara á Laugarvatn að ná í spólu sem innihélt Idol frá kvöldinu áður. Ákváðum ég og Bjarni að moka sirka 200 metra leið til að komast út. Eftir 4 tíma mokstur kom snjóblásari og blés því litla sem var eftir. Gríðarhressandi. Horfðum á Idol þar sem minn maður vann. Svo skelltum við okkur í party & co og svo lognaðist þetta útaf um 2 leytið. Ég og Bjarni ákváðum að skella okkur í pottinn og fórum ekki uppúr fyrr en um 5 leytið. Mikil snilld. Kjöftuðum og þömbuðum bjór. Sunnudagurinn fór vel og lagt var af stað heim um 2 leytið. Það gekk vel og allir komu heim heilir. Eða eins og einn snillingurinn sagði "Sweet home sweet".

föstudagur, janúar 16, 2004

Ég á afmæli í dag, ég á afmæli í dag, ég á afmæli ég sjálfur, ég á afmæli í dag! Húrra! Húrra! Húrraaaaaaaa!!!

P.S. Styttist í brottför til bústaðar...

þriðjudagur, janúar 13, 2004

Ahhhhhh.....sumarbústaður á föstudaginn. Það verður mikil snilld. Bjór og heitur pottur. Get ekki beðið.

mánudagur, janúar 12, 2004

Þegar ég loggaði mig hérna inn og ætlaði að fara að blogga, þá rann það upp fyrir mér að ef að ég færi að þylja upp það sem við Heiða gerðum um helgina, þá væruð þið sennilega að lesa það í annað sinn og það gengur ekki að bjóða dyggum lesendum sínum uppá dragúldið blogg. Þess vegna ákvað ég að koma með ferskt blogg. Verð nú samt að segja frá leiknum sem við skelltum okkur á. Þar tókum við Sviss í aðra nösina og höfðum pláss fyrir nokkrar þjóðir í viðbót í hinni. Keyrðum bara á varaliðinu í seinni hálfleik. Tókum þá með 9 mörkum sem er bara gott. Held að þeir eigi eftir að standa sig vel á EM. En hei....Ætli maður kíki ekki bara á vídjó núna???

laugardagur, janúar 10, 2004

Alltaf hressandi að vaka massa lengi. Ég hef ekkert sofið núna síðan á föstudagskvöldið og lokaði ég augunum í heilan klukkutíma þá. Núna er kominn laugardagur og núna ætla ég að reyna að sofa eitthvað. Þarf nebblega að fara að vinna aftur í kvöld. Alltaf stuð á næsta bar. En hei... Það kom soldið skrýtinn gaur niðrá bar í gær. Hélt hann á mikilli bók. Ég spurði hann útí flösku sem hann var með inná sér. Það skipti engum togum að gaurinn tók upp páfagauk úr innanávasanum. Já...PÁFAGAUK! Segi ég og skrifa. Ég spurði gaurinn hvað hann væri að gera með páfagauk. Sagði hann þá að hann héti Jóhanna. Þá var mér öllum lokið og bað ég hann um að vera með hana úti. Þetta reddaði kvöldinu fyrir horn. Annars nenni ég ekki að skrifa meira vegna þess að orkan er ekki til staðar. Bæ.
By the way.... TJÉKK IT ÁT!!! Massa flott nýtt lúkk á þessu hjá mér. Heiða snilli gerði þetta allt saman. Ekkert smá flott hjá henni! Ég er yfir mig hrifinn.

sunnudagur, janúar 04, 2004

Var svakalega skemmtileg. Uppfull af skemmtilegu, fyndnu drukknu fólki. Komst að því fyrir stuttu síðan að ég er kominn með ógeð á því að vera dyravörður. Þessi rúmu 3 ár fyrir austan voru bara alveg nóg. Mér væri sama þó svo ég sæi aldrei aftur blindfullt ókunnugt fólk aftur. En hvað um það. Helgin fór bara í þetta. Vinna og sofa. Horfði vísu á cabin fever líka. Alveg fín bara. Svona hrollvekju gamanræma. Soldið sona skerí líka. Hef ekki mikið meira að segja bara...

miðvikudagur, desember 31, 2003

Gleðilegt tvöþúsundogfjögur!
Takk fyrir tvöþúsundogþrjú.

Gangið á Guðs vegum.

laugardagur, desember 27, 2003

eru svakalega góðar. Held að ég sé búinn að borða yfir mig af þeim. Það er svo freistandi að læðast í boxið og fá sér smá. Og smá malt og appelsín með. En HEI!!!! ÞAÐ ERU AÐ KOMA ÁRAMÓT!!! JAAAAHÚÚÚÚÚ!!! Sprengjur og svona fínerí. Ekki skemmir að fá sér vindil með. Það verður spennandi að sjá hvernig áramótaskaupið verður. Það verða miklar væntingar vegna þess að seinustu tvö voru helvíti góð. Óskar Jónasson er nebblega fjandi fínn grínari og leikstjóri. Vonandi gengur vel að keyra í bæinn. Soldið mikill snjór og hálka og sona. Þá keyrir maður bara varlega.

Eitthvað fór nú úrskeiðis þegar ég reyndi að blogga í gær. Gat bara ekki publishað. Veit ekki af hverju. En að öðrum málum. Hvað eru margir búnir að sjá Lord of the rings? Rétt upp hönd! Ég ætla að skella mér á hana þegar ég kem í bæinn. Djöfull eru Bold and the beautiful skelfilegir þættir. Ég er viss um að vélin er bara látin ganga alveg sama þó svo að fólk sé að klúðra textanum. Er ekki best núna að skokka niður og ná sér í smákökur? Aðeins að éta meira...

föstudagur, desember 26, 2003

Maður gerir ekkert annað þessa dagana. Hangiket, svínakjöt, lambakjöt... Er hægt að hafa þetta eitthvað betra? Það held ég bara ekki. Nú er annar í jólum og ég sit hérna fyrir framan sjónvarpið með bjór í hendi og með fartölvuna í fanginu og er að blogga. Er að bíða eftir matnum. Það er grillað lambalæri í matinn. Sljúrbí hljúrbí. Annars eru þessi jól búin að vera algjör snilld bara. Svo hlakkar mig ekkert lítið til um áramótin. Það er svo gaman þegar maður er með öllu fólkinu sínu og allir í góðu stuði. Enn og aftur vona ég að allir eigi skemmtilega áttíð og endilega skrifið í gestabókina.

fimmtudagur, desember 25, 2003

Nú sit ég uppí sófa á Hraunhólnum og er að blogga. Hef komist að því að þráðlaust net er mikil snilld. Hægt að vera bara út um allt og blogga. Jamm.....Jólamaturinn klikkaði náttlega ekki frekar en venjulega. Nýtt svínalæri og allt. Mikil jólasnilld. Svo er hangiket í kvöld hjá mömmu og pabba... Nammi namm namm... Svo skellir maður sér aftur í bæinn fyrir áramótin til að vinna svolítið. Svo heldur maður bara uppá áramótin í Reykjavíkinni í fyrsta skipti. Ég fékk helling í jólagjöf. Ber þar hæst gallabuxur,bolur og cool water frá Heiðu. Svo fékk ég frábært myndaalbúm frá mömmu og pabba. Svona myndir af mér þegar ég var ungur og vitlaus. Svo alveg helling í viðbót sem ég nenni ekki að fara útí hérna. Jæja...best að gera sig kláran fyrir hangiketið. Later alligators...

miðvikudagur, desember 24, 2003

Og hafið það sem best yfir hátíðarnar...

þriðjudagur, desember 23, 2003

Ég er kominn heim í heiðardalinn...

sunnudagur, desember 21, 2003

Sæl og blessuð. Ég er í mögnuðu stuði. Er búinn að vera að vinna eins og moðerfokker alla helgina. Rauninni frá fimmtudegi sem er voða hressandi. Hlusta á drukkið fólk segja brandara. Gætuð þið hugsað ykkur að eyða kvöldunum öðruvísi en að hlusta á einhverja sjálfskipaða uppistandara almúgans reyna að segja einhverja sorglega brandara sem enginn skilur nema þeir? Það er einhvernveginn svona : "gummfikklossguddrtusfflimmboallmoreeeekllll" Og svo springur viðkomandi úr hlátri og veltur innum dyrnar. Já...hrissilega hressandi. Svo leggjum við af stað á morgun. Það verður sko gaman. Helga, Þórir og Fjalar Hrafn. Þar verður stuð...

föstudagur, desember 19, 2003

Sæl og bless. Hef bara ekki bloggað hérna í háa herrans. Hvað er að gerast með mig eiginlega??? Ég veit. Maður hefur bara ekki nennt þessu sökum annríkis í vinnunum mínum. Er að vinna myrkranna á milli þangað til við förum austur. Ég sef bara þá. Er það ekki annars hægt? Ég hef heyrt að maður getur skuldað svefn sem þýðir að ég verð stórskuldugur þegar við förum til Hornafjarðar. ohhhh....mig langar að fara strax. Nenni ekki að hanga hérna lengur. Langar í kyrrðina og rólegheitin á Hornafirði...

föstudagur, desember 12, 2003

Já...þetta var helvíti vont. Datt á hausinn í gær. Steig á hálkublett, lagðist flatur í loftið og svo vann þyngdaraflið sína vinnu. Lenti svona líka fínt á olnboganum og hann fjórfaldaðist bara. Megnið af því var blóð. Stakk á það. Æðislegt. Fór uppá slysó. Ekkert brotið sem betur fer en þarf að hlífa hendinni í svona 2 daga til að sárið jafni sig og pokinn hverfi. Yndislegt. Ég er að spá í að sækja um svona 200 þús kr kauphækkun. Það finnst mér sanngjarnt. Það mæðir mikið á mér í vinnunni og miklar kröfur gerðar. Þannig að 200 þús kr kauphækkun ætti ekki að vera vandamál. það held ég...

þriðjudagur, desember 09, 2003

Jæja...Allir hressir bara...Ég hef ákveðið að hætta með rokk trívíuna mína einfaldlega vegna þess að ég nenni ekki að koma með einhverjar helvítis spurningar. Eintómt vesen að vera að þessu. Þess í stað ætla ég að röfla um eitthvað annað. Alltaf verið að ræna einhverju. Misgáfaðir þessir vitleysingar sem reyna þetta. Sumir mæta á einkabílunum sínum og ætla svo bara að keyra í burtu eins og fínir menn. Þetta mundi ég einmitt gera ef ég ætlaði til dæmis að ræna forsetanum okkar. Ég mundi bruna heim til hans, hlaupa inn, segja honum að drulla sér uppí bíl, og dúndra svo af stað. Það myndi ábyggilega enginn vita hvar Óli væri. Menn verða nú bara að hugsa dæmið til enda ef þeir ætla að gera svona lagað á annað borð. Annars held ég að það sé best að sleppa þessu bara. Vera bara þægur þegn, hirða sín lúsarlaun, kaupa allt dýrum dómi og eiga aldrei neitt. Það er best. Hei....Svo er nú eitt. Það er til svona klúbbur sem heitir Sambíóklúbburinn eða eitthvað. Meðlimum gefst kostur á að fá ódýrara í bíó og eitthvað fleira. Svo um daginn gafst fólki kostur á að fara ódýrara í bíó. Og vitiði hvað??? 50 KR LÆKKUN!!! NOHHH!!!! Það er aldeilis! Lélegt. Er ég bara alltaf síkvartandi hérna? Held það bara. Nú er maður að fara að keyra kjúlla út um allt. Þarf að fara 21. des uppá Hvammstanga til að ná í kjúkling. Og ekkert smá magn. 14000 stykki. Jebb. 14000 stykki. Ég veit þið trúið þessu ekki en þetta er satt. Haldiði að ég sé að ljúga? Er ég vanur að ljúga að ykkur hérna? HA?!?!....... Hélt ekki. Annars er ég bara hress...

laugardagur, desember 06, 2003

Já...Sigurvegari seinustu rokktrívíu er engin önnur en Heiða Björk Halldórsdóttir. Hún svaraði Ian Dury and the blockheads sem er alveg hárrétt. Hef hana nú samt grunaða um græsku. Held að hún hafi kíkt í mp3 spilarann og bara skoðað hvaða hljómsveit flytur þetta lag. En það er allt í lagi. Þessi trívía fékk ekki góðar undirtektir en ég mun halda ótrauður áfram og skella fram hér spurningu númer 2. Hvað heitir George Michael réttu og fullu nafni?

þriðjudagur, desember 02, 2003

Ójá. Netið búið að vera í fokki hjá mér og allt eins og það sé á módem hraða hérna. Skil ekki hvernig maður gat verið með 56 k módem hérna í gamla daga. Núna ef netið dettur niður í svona 30 k á sec þá verður maður snargeðveikur. Gaman að því. En nóg um það. Kvír æ for ðe streid gæ er snilld og ekkert annað. Hló mig máttlausan fyrir framan þetta áðan. Þetta eru snillingar. Mæli eindregið með þessum þáttum. Annars er maður bara í góðum fílíng. Spurning um að vera með smá rokk og ról trívíu hérna þegar ég nenni. Þá kem ég með spurningu úr rokkheiminum og þið farið á komment svæðið og svarið þar. Það gæti nú verið gaman. Fyrsta spurning. Hvað hét hljómsveitin sem átti stórslagarann Hit me with your rythmstick?

mánudagur, desember 01, 2003

Fyrir þá sem ekki vita hvað það er...þá er það einskonar ávöxtur. Ég hef hinsvegar ekki hugmynd um í hvað hann er notaður. Svo má einnig nefna pomelo, rambútan, kumquats og margt fleira. Þetta er allt eitthvað fríkí sjitt sem einhverjir virðast kaupa. Veit ekki af hverju. Núna er bara komin rigning. Það er ágætt. Annars held ég það sé einhver geðklofi sem stjórnar veðrinu hérna. Hef ákveðið að komast að því hver framleiðir sófann sem Kolla og Palli eiga. Ég sofna alltaf í honum þegar ég kem í heimsókn. Magnað. Ég ætla nebblega að kaupa mér svona sófa. Mæli með þessum sófa fyrir alla þá sem eiga við svefnleysi að stríða. Klöppum fyrir ríkisstjórninni. Þeir ákváðu að leyfa okkur að borga meira í ríkiskassann. Ég þoli ekki þessa djöfulsins drullusokka. Þeir mega troða sjálfum sér uppí rassgatið á sér.

laugardagur, nóvember 29, 2003

Sæl og bless. Eins og þið hafið eflaust tekið eftir hef ég ekki verið með öllum mjalla uppá síðkastið. Röflandi um allan andskotann. But NO MORE!! Eða jú annars. Ég mun halda áfram að röfla. You can bet your ASS on that!!

fimmtudagur, nóvember 27, 2003

Allt er þegar þrennt er. Ég ákvað að blogga hér í þriðja skiptið í dag bara til þess að blogga í 3 skipti á sama deginum. Þar með set ég met hjá mér sem ég á aldrei eftir að slá. Ekki nema ég veikist aftur svona skemmtilega og þurfi að hanga heima. Það er ekkert voða gaman að hanga heima. Þeir sem hafa það reynt geta kinkað kolli. Held nú að ansi margir séu að kinka kolli núna. Harrý og Heimir eru snilld. Ég er svo heppinn að eiga rúmlega 40 þætti á mp3 formi. Þetta fær ósjaldan að hljóma í tölvugræjunum mínum. Þeir sem ekki hafa hlustað á þetta....só sorrí....held að þetta finnist ekki á mörgum stöðum. En ef þið eruð alveg að deyja úr forvitni þá getiði kíkt í heimsókn og hlustað á þetta með mér. Við gætum gert soldið úr heimsókninni og poppað og sona. Það væri nú gaman. Ég nenni ekki að glápa meira á vídjó. Kominn með nett ógeð. Bara nett. Held að þetta líði hjá. Vona það allavega. Ef ekki þá verð ég að leita læknishjálpar.

Já...það er hressandi að rasa út um eitthvað sem maður hefur ekki hundsvit á. Eins og til dæmis stjórnmál. Þess vegna hef ég ákveðið að gera sem minnst af því að tala um stjórnmál. Enda finnst mér þau ekki skemmtilegt umræðuefni. Stundum getur maður bara ekki hamið sig. Ég hef samt ákveðið að hemja mig ennfrekar. Held bara að ég skelli mér í vinnuna á morgun. Er orðinn mun hressari en ég hef verið uppá síðkastið. Held barasta að ég sé orðinn hitalaus og allt. Sem er gott. Þennan bata á ég henni Heiðu að þakka. Hún er búin að hugsa svo vel um mig á meðan ég var lasinn. Hún hugsar nú barasta alltaf vel um mann, ég þarf ekkert að vera veikur til þess. Selska. Jæja...er ekki best að glápa á eina mynd í viðbót til að toppa þetta vídjógláp. Var að enda við að horfa á Event Horizon. Þvílíkur djöfuls viðbjóður. VÍHÚ!!!

Alltaf gott að fara í sturtu. Sérstaklega þegar maður þvær af sér veikindin. Ég gerði það nebblega áðan. Þvoði þetta helvíti af mér bara. Hei...ef þið hafið ekkert betra að gera, þá skuluð þið endilega kíkja á Alþingi sem er í sjónvarpinu á morgnana. Þar geta orðið snarpar umræður um allan andskotann. Eins og til dæmis ritskoðun hjá RÚV. Það er sko spennandi. Geir Horköggull kom í pontu, skeit á sig og settist síðan niður. Fáum einhverja aðra en Sjálfstæðisflokkinn til að stjórna þessum klaka. Mig langar að sjá hlutina breytast. Kannski getur einhver annar flokkur staðið sig betur. Ef ekki, þá skal ég glaður kjósa Sjálfstæðisflokkinn aftur til starfa. Mig langar bara að gefa öðrum sjéns. Það eiga allir að vera með. Getum við ekki bara verið með svona scramble fyrirkomulag? Eftir einhvern X tíma þá tekur annar flokkur við og svo koll af kolli. Þá fá allir að prófa og fólk getur séð hverjir standa sig best. Þá líka leggja allir sig meira fram til að öðlast vinsældir og virðingu hjá almúganum sem hefur seinasta orðið með það hver fer með stjórnina í þessu landi. Það finnst mér gleymast stundum, hverjir það eru sem ákveða það hverjir eru kosnir. Öllum andskotanum er lofað fyrir kosningar, svo er allt gleymt þegar það er búið að kjósa þessa rykföllnu kalla til valda. Þeir halda ábyggilega að við munum ekki neitt. Og það er tilfellið. Sömu gömul pappakassarnir eru kosnir aftur og aftur og aftur og aftur. Og hvað gerir þorri þjóðarinnar næstu kosningar? Hlustar á þessa kalla skíta með munninum og kýs þá svo aftur til valda. Takk fyrir það....

miðvikudagur, nóvember 26, 2003

Búinn að glápa á margar myndir í veikindum mínum. Má þar nefna Signs, Below og Amazon women on the moon. Allt fínar myndir og finnst mér byrjunaratriðið í A.W.O.T.M. ótrúlega fyndið. Mæli með að þið tékkið á því. Farið á næstu vídjóleigu og leigið þessa mynd. Annars er ég bara ennþá með hita og kvef og hósta og beinverki og allt. Ótrúlega gaman. Bíð spenntur eftir næsta flensukasti. Það er líka svo gaman að skiptast á að vera skítkalt og sjóðandi heitt. Gæti ekki hugsað mér að eyða dögunum öðruvísi. Finn ekkert skemmtilegt á netinu til að gera... Mér leiðist...

þriðjudagur, nóvember 25, 2003

Sæl öllsömul. Hvað er á seyði? Nú ligg ég hér heima og er með 39 stiga hita. Það er sko stuð. Einnig er ég uppfullur af kvefi og það virðist ekki ælta að hætta að renna úr nefinu á mér. Ég hringdi í Loreal og spurði útí anti skæl sjampó fyrir kalla. Ég fékk þau svör að gerðar voru rannsóknir á árunum 65 - 76 og leiddu þær í ljós að skæl eða flasa eins og það heitir á okkar ástkæra ylhýra, var mjög algeng á meðal karlmanna. Var þá ákveðið að ekki skyldi framleitt sjampó öðruvísi en það innihéldi efni sem væri flösu fyrirbyggjandi. Ég þakkaði pent fyrir mig og lagði á. Eftir þessar fréttir ákvað ég að kaupa héðan í frá ekkert sjampó heldur nota bara bílasápuna frá Autowax. Eðal sápa sem inniheldur engin flösuefni og ekki nóg með það heldur glansar skallinn á mér miklu meira eftir að ég byrjaði að nota þessa frábæru sápu. Takk fyrir mig...

laugardagur, nóvember 22, 2003

Eða eitthvað. Af hverju eru öll karla sjampó flösusjampó? Eru allir karlmenn í heiminum með flösu? Það hlýtur að vera. Allavega virðist ekki vera hægt að kaupa homme sjampó án þess að það sé anti mjalla sjampó. Þess vegna nota ég alltaf mjallar bón fyrir hárið á mér. Það virkar. Var að dyravarðast í gær. Mikið stuð og allir á rassgatinu. Alveg magnað hvað fólk getur innbyrgt mikið magn af áfengi og staðið í lappirnar. Frekar rólegt kvöld samt fyrir utan einn sem reyndi að lemja okkur dyraverðina. Hann hefði betur sleppt því bara. Fékk ókeypis flugferð í boði Heimisson airlines beint út um dyrnar.

laugardagur, nóvember 15, 2003

Fór á ball í gær á Nasa. Rosa stuð og slatti af eldra fólki að dansa. Alltaf gaman að fylgjast með fólki þegar það er að dansa. Sumir eru með rosalega skrýtnar hreyfingar og þeim virðist vera lífsins ómögulegt að halda takti. Svo eru aðrir sem gera þetta ágætlega. Vorum nú ekki lengi á ballinu. Fórum um 2 leytið heim. Svo er bíó í kvöld. Mystic River heitir myndin og ég veit EKKERT um hana. Sem er svosem ágætt. Svo er ég að spila ROSALEGAN leik í augnablikinu fyrir þá sem hafa áhuga á soleis. Call of duty heitir hann og hef ég sjaldan spilað jafn intense leik eins og þennan. Tékkið á honum þeir sem spila soleis leiki....mæli með honum hikstalaust!

föstudagur, nóvember 14, 2003

Fór á uppistand í gær. Massa gaman. Steinn Ármann var þarna og var fjandi fyndinn. Á undan honum voru 2 aðrir gaurar sem voru góðir líka. Ég og Gunnar Örn skemmtum okkur konunglega. Svo er nú eitt. Ég er alltaf að vinna einhverja miða. Uppistandið var ókeypis, vann miða á það. Svo er ég að fara á ball með Bítlavinafélaginu á eftir, það er einnig ókeypis. Svo er bíó á morgun, sem ég borga ekki krónu fyrir. Allt er þetta í boði Rásar 2. Mætti halda að ég ynni þarna. En það er nú ekki þannig. Ætli staffið fái ekki fullt af miðum? Eins og allir kaupa grænmeti, en ég fæ alltaf fullt af því líka, ókeypis. Magnað helvíti...

fimmtudagur, nóvember 13, 2003

And I know it aches
How your heart it breaks
You can only take so much


Walk on
Walk on


Home
Hard to know what it is
If you never had one


Home
I can't say where it is
But I know I'm going


Home
That's where the hurt is






þriðjudagur, nóvember 11, 2003

Það er gaman að því. Gríninu sko... Laddi er fyndinn. Sérstaklega sem grínverjinn. Er að hlusta á hann. Mikið gaman, mikið grín. Djöfull er þetta alltaf ferskt. Maður hlær alltaf jafn mikið að þessu rugli. Ætli Laddi verði einhverntíma talinn ófyndinn? Held ekki. Dagurinn var fínn í dag. Svosem nóg að gera og allt gekk bara vel. Djöfull eru upphitaðar pulsur vondar! Ég setti þær í örbylgjuna og viti menn....BANG!!! Þær sprungu í tætlur! Þær voru ekki góðar á bragðið en niður fóru þær. Hressandi.... Prófið þetta einhverntíma. Borðið eitthvað ógeðslegt og finnið hvernig það smakkast. Látið mig svo vita hvað það var sem þið borðuðuð.

mánudagur, nóvember 10, 2003

Jæja...þá er maður aftur kominn í dyrnar. Byrjaður að vinna sem dyravörður á næsta bar. Ansi fínt bara...massa rólegur staður. Eina sem maður gerir er að hjálpa sauðdrukknu fólki út og henda gaurum út sem reyna að stela bjór af krananum. Mikið af þotuliðinu sem sækir þennan stað og það er bara gaman. Svo er meira að segja bannað að syngja þarna og bannað að taka myndir og ekki nein tónlist spiluð. Það er soldið fyndið. En fólk virðist fíla það að geta komið og kjaftað og þambað bjór og þarf ekki að öskra yfir háværa tónlist. Jájá... Meira að segja Gísli Marteinn mætti á svæðið og ég var mikið að spá í að bjóða honum kaffi og hálfmána, kannski kleinur. Hann er svo vinalegur að maður bara getur ekki annað. Var búinn kl 6 bæði kvöldin. Soldið seint en sona er þetta. Fólk virðist nenna að sitja alveg ótrúlega lengi eftir að búið er að loka. Það er nebblega lokað kl 4 en fólk spáir ekkert í það. Alveg sama þó svo maður hækki ljósin eða bara hreinlega slökkvi þau. Fólk situr sem fastast. Þá næ ég í kylfuna mína og táragasið, fylli salinn af táragasi, læt svo höggin dynja á fólkinu........nei.........djók..........

fimmtudagur, nóvember 06, 2003

Gúddag! mmm...fiskur með karrý er fjandi fínn. Skemmir ekki að hafa hrísgrjón með. Helvíti langar mig að sjá Matrix revolutions. Hún er ábyggilega geðveik. Finnst samt að Matrix hefði bara átt að vera ein mynd. Fyrsta var svo geðveik og rosaleg að Wachowski bræður hefðu bara átt að hætta eftir hana. En hvað veit ég...? Langar í kaffi...kannski fæ ég mér....Langar í 200 milljónir.....kannski fæ ég mér...

mánudagur, nóvember 03, 2003

Komið sæl. Mikið vatn hefur nú runnið til sjávar síðan ég skrifaði hugrenningar mínar hingað. Við fórum til Hornafjarðar um helgina og vorum viðstödd þegar HP opnaði nýtt og stórglæsilegt hús. Svo voru þeir að kaupa nýjan trukk, ógeðslega flottan Iveco Stralis og mig langar ekkert smá að prófa hann! Svo fórum við á árshátíð sem var snilld. Æðislegur matur og skemmtilegt ball með Dansi á rósum. Menn voru í rosalegu stuði svo ekki sé meira sagt. Svo skriðum við heim á sunnudaginn og gekk það bara vel. Rosalega flott norðurljós sem við sáum á Mýrdalssandi. Keyrðum svo framhjá bílnum sem ég skildi eftir á Vík. Förum ekki nánar útí það. Kíkið á bloggið hennar Heiðu til að fá nánari útskýringar. HEI! Þegar við vorum á leiðinni heim þá var landsleikur í gangi. Ísland - Pólland og við hlökkuðum ekkert lítið til að hlusta á hann í útvarpinu. EN NEI!!!! Honum var ekki líst!!! Bara í sjónvarpinu! Hversu mikið mál hefði það verið að dúndra einum fréttamanni á leikinn og láta hann lýsa þessu fyrir það fólk sem var ekki fyrir framan imbann?!?!?!? Djöfuls drullukompaní!!! RÚV getur tekið þessi afnotagjöld og troðið þeim uppí rassgatið á Markúsi Erni!!! Og hafiði það...

miðvikudagur, október 29, 2003

Að ég hef ákveðið að halda áfram að skrifa hérna inn. Viðbrögðin hafa verið mjög góð við atkvæðagreiðslunni. Fólk hefur verið mjög duglegt að senda inn hvatningarorð. Kransar og blómvendir eru afþakkaðir en þeir sem vilja gefa eitthvað er bent á Samtök bloggara með ritstíflu eða SBMR. Held að ég sé farinn að missa vitið. Ég er farinn að fíla lagið Hey ya með Outkast. Þoldi það ekki fyrst en djöfull venst það. Það verður stuð um helgina hjá mér og Heiðu. Við erum að fara austur á árshátíð hjá HP. Það verður massa gaman. Verið að fara að opna nýtt hús og allt. LIFI BYLTINGIN!!!

þriðjudagur, október 28, 2003

Uss...ég er alltof latur við að skrifa hingað inn. Á maður að vera að þessu helvíti? Er einhver sem nennir að sitja við skjáinn og lesa þetta? Æji...ég veit það ekki. Ég vil bara fá atkvæðagreiðslu hérna.

föstudagur, október 24, 2003

Var að glápa á þetta áðan. Ansi fínt bara. Gaman að Bubba. Og náttlega gaman að hlusta á fólk syngja vel. Ég segi að Kalli og MA gellan fari áfram. Held að það sé ekki spurning. Hei! Djöfull er ég orðinn þreyttur á Bónus hrásalati. Það er tilboð á þessum viðbjóði núna í Bónus, 99 kr dósin, og þetta mokast gjörsamlega út!!! Fólk virðist missa vitið um leið og eitthvað kostar lítið. Ég er viss um það ef maður myndi frysta skjaldbökuskít og selja sem dýrindis dessert frá miðausturlöndum, láta dósina kosta svona 50 kall, þá myndi fólk kaupa þetta í bílförmum og ég myndi græða helling. Þá er það ákveðið. Ég hringi í einhvern skjaldbökubónda á morgun og fæ hann til að safna skít fyrir mig. Eruð þið nokkuð með númer hjá einum soleis? Látið mig endilega vita.

sunnudagur, október 19, 2003

Gaman að sjá hvað fólk hefur verið duglegt að kommenta uppá síðkastið. Sýnir mannir að það er einhver að lesa þetta kjaftæði sem vellur uppúr manni. Fór að djamma í gær. Kannski ekki frásögu færandi nema það að ég kom heim kl 5:30 sem er fjandi seint fyrir mig. Ég hef aldrei tollað svona lengi á djamminu. Og ég var meira að segja drekkandi Kaftein Morgan. Það er alveg ótrúlegt. Þetta er svona þegar við félagarnir Bjarni og ég tökum okkur saman og skellum okkur á djammið. Jón Atli var einnig með í för og hann átti fína spretti. Skelltum okkur oní bæ kl 2 eftir að hafa horft á snilldarmyndir eins "Hurðin" "Kappar í klandri" og "Body Count". Að ógleymdum 911 talsettum þáttum þar sem Gunnar Örn og Pétur nokkur Heimisson fara á kostum í hlutverkum slasaðra og uppdópaðra bandaríkjamanna. Hlógum eins og brjálæðingar. En hvað um það....Mættum á Viktor og fórum að dansa úr okkur allt vit. Það var massa gaman. Vorum þar meira og minna allt kvöldið. Svo var bara farið heim um HÁLF SEX!!! Sofnaði eins og steinn og vaknaði ferskur kl 11. Reis úr rekkju og át myglaðar pulsur og flatt diet pepsi. Gerist ekki betra. Bíð svo hér eftir minni heittelskuðu sem er á leiðinni heim frá Hornafirði. Mig hlakkar svo til að faðma hana og knúsa hana og kyssa hana og.... Eins og Guðjón Rúdofl orðaði það: "Kari kari kari kari konan mín, kari konan mín, kari konan min? Kari kari kari kari konan mín, hún var hér í gær." Góðar stundir.

laugardagur, október 18, 2003

Einmitt núna er ég að hlusta á eitt skelfilegasta lag sem samið hefur verið. Fagra litla diskódís. Þetta er alveg svakalegt. "'Ó litla diskódís, því færðu gæsahúð, og verður köld sem ís, er sérðu plötusnúð?" Þvílík textasnilld. Held að þetta lag hafi verið kosið leiðinlegasta lag sem samið hefur verið. Það var kosning á Rás 2 einhverntíma. Tékkið á þessu lagi. Hei...og líka 3 tonn af sandi. Það er brillíant. Áfram Jón Arnór!! Hann er að massa NBA deildina. Skoraði 6 stig um daginn og var með 5 stoðsendingar. Það er kúl.

föstudagur, október 17, 2003

Ég þekki einn strák sem var ansi heppinn seinustu nótt. Hann lenti í bílveltu. Ekki að það sé einhver heppni, heldur var hann heppinn að því leyti að hann er til frásagnar um hana. Guði sé lof. Mér skilst að það hafi verið rolla á veginum. Réttast væri að þessi búfénaður væri réttdræpur á lausagangi við þjóðveginn. En því er víst ekki að heilsa. Og verður sennilega aldrei að heilsa. Ég þoli ekki rollur og hef aldrei þolað þær.

mánudagur, október 13, 2003

Mig dreymdi massa skrýtinn draum um daginn. Það rigndi loftsteinum í Nesjahverfinu. Ekki veit ég hvað þetta þýðir. En skrýtið var það. Djöfull vælir þetta lið í Survivor. Kannski að maður myndi væla svona sjálfur. Ég veit það ekki. Mér finnst líka svo skrýtið að þetta er alltaf svipað í öllum seríunum. Maður hafði haldið að fyrsta serían yrði svona væl og leiðindi. Svo væri valið fólk í næstu seríu og allir búnir að sjá hvað þetta gengur útá. Byggja skjól, verða sér úti um mat og framvegis. En nei...alltaf grenjar fólk yfir því hvað það sé mikið af skordýrum eða hvað það er svangt og allir ömurlegir. Aumingjar...

laugardagur, október 11, 2003

Þá er það á hreinu...best að copy peista þetta svo það líti út fyrir að maður sé voða duglegur að blogga!!! :D

fimmtudagur, október 09, 2003

Sæl og bless. Djöfull er mér ill í hálsinum! Alltaf gott að kyngja svona. En hvað um það...Heiða gaf mér sítrónute...það var voða gott.

Sæl og bless. Djöfull er mér ill í hálsinum! Alltaf gott að kyngja svona. En hvað um það...Heiða gaf mér sítrónute...það var voða gott.

þriðjudagur, október 07, 2003

Er gott. Það var í matinn í kvöld. Og smá svona sósa með. Spagettísósa. Þetta klikkar ekki. FÓG! Fljótlegt, ódýrt og gott. Svo er fínt að fá sér smá kaffi. Annars er lítið að frétta frá mér. Er með svaka fína hálsbólgu sem er alltaf jafnhressandi. Jæja...best að fara að skrifa eitthvað af þessum bíómyndum sem maður er alltaf að lóda....

þriðjudagur, september 30, 2003

Sæl og bless. Hef ekki verið duglegur að skrifa hérna. Nenni því varla. En snúum okkur að málefnum líðandi stundar. Við vorum að keyra á sæbrautinni í dag og hvað haldið þið? Við sáum þennan líka rosalega reyk og við héldum að það væri kviknað í einhversstaðar. En nei nei.... Okkur til mikillar skemmtunar var þetta strætó sem virtist á öllu vera með úrbrædda vél eða eitthvað vegna þess að reykurinn kom allur frá honum. Alveg ótrúlegt vegna þess að magnið var svakalegt!!!! Það var ekki verið að stoppa strætóinn....nei....minn maður rúntaði bara í rólegheitunum hægra megin á veginum og lét sig engu skipta þó svo að skyggnið fyrir aftan hann var innan við meter. Það held ég nú. Djöfull var lítið að gera í vinnunni í dag. Sjaldan kynnst öðru eins. Þurftum samt að fara yfir slatta af grænmeti og henda svona 300 kg af melónum. Þannig að þið vitið hvert þið þurfið að fara ef ykkur langar í melónur. Það er blái gámurinn sem er nær húsinu. Ef þið farið í hinn finnið þið bara pappakassa. Ég hef heyrt að þeir fari ekki sérlega vel í maga. Má samt alltaf reyna þegar í harðbakkann slær.

laugardagur, september 27, 2003

Bjór er góður. Einmitt núna er ég að drekka Thule í gleri. Það gerist ekki mikið betra. Ef þú veist ekki hvaða bjór þú átt að drekka, þá er þessi fínn til að byrja á. En nóg um það. Nú þarf ég að pissa. Það er gallinn við að drekka bjór. Skrýtið að það sé ekki búið að finna upp bjór sem maður þarf ekki pissa eftir að maður er búinn að drekka hann.

þriðjudagur, september 23, 2003

Soldið síðan ég bloggaði seinast. Mikið að gerast. Svona er lífið. Alltaf eitthvað að gerast. Nenni ekki að skrifa meira....

laugardagur, september 20, 2003

Jæja krakkar mínir. Hérna er ég kominn fyrir framan tölvuna nýstiginn uppúr rúminu. Held að við höfum gert reyfarakaup með því að versla þetta rúm. Ótrúlegt hvað maður sefur vel í því. Hei....Hver horfði á 70 mín í gær? Magnað að sjá þegar Auddi hellti heitu vaxi á magann á Guðna Bergsson. Og þegar Stjáni 3000 reyndi að setja íslandsmet með því að drekka Pepsí á hvolfi standandi á haus eins og Stjáni orðaði það. Já, alveg hreint magnaður þáttur. Alltaf gaman þegar það er laugardagur. Þá er sunnudagurinn eftir. Það er alveg yndislegt. Hei...er ekki gott að fá sér kaffi núna? Ég hefði haldið það. Þá vitiði það....Ég er farinn að fá mér kaffi.

miðvikudagur, september 17, 2003

Sæl og bless. Ég er svangur. Það er ekki gott. Ætli það sé ekki vont að deyja úr hungri? Soldið sárt ábyggilega. Vonandi gerist það aldrei. Hefur einhver hér hlustað á Harrý og Heimi?? Ef ekki þá er það algjört möst!! Þetta er mesta snilld sem ég hef nokkurn tíma heyrt. Þið verðið að komast yfir þetta og tékka á þessu.....Later......

föstudagur, september 12, 2003

Hvað segiði þá? Eru ekki allir hressir með kaffibolla í annari og vínarbrauð eða annað góðmeti í hinni? Allavega ekki ég. Allavega hvað varðar kaffið og góðmetið. Ég er hress að vanda. Alltaf hress. Hressari en Hemmi Gunn og þá er mikið sagt. Eina sem ég segi allan daginn "Veriði hress, bless." Heiða er að verða geðveik á því. Ég er að spá í að byrja með sjónvarpsþátt Þar sem ég fæ hundleiðinlegt fólk í viðtal, er með hundleiðinlegan skemmtikraft sem sideshow og ömurlega hljómsveit sem er uppbyggð af útbrunnum hippum. Geri svo ekki annað en að ávarpa fólkið heima í stofu sem elskurnar mínar, og segi öllum að vera hressir. Já. Svona var þetta í gamla daga. Ég væri ekki að koma með neitt nýt ef ég myndi gera þetta, en ég er viss um að það yrði massa vinsælt einfaldlega vegna þess að það er alveg sama hvursu margir byrja á þessu konsefti, það hættir aldrei að falla í kramið hjá fólkinu heima í stofu. Og ég veit af hverju. Vegna þess að Íslendingar eru svo forvitnir um hagi hvors annars, að þeir drekka í sig alla þá þekkingu, ef þekkingu skyldi kalla, sem kemur fram í þessum stórkostlegu viðtalsþáttum. Skil ekki af hverju það er ekki löngu byrjaðir raunveruleikaþættir sem eru teknir upp heima hjá einhverjum Íslendingi. Það yrði svo vinsælt að annað eins hefur ekki sést. Svei mér. Best að fara að gera sig kláran í háttinn. Vinna á morgun. Finnst að það ætti að vera bannað að vinna á laugardögum. Íslendingar eru geðsjúklingar.

sunnudagur, september 07, 2003

Já krakkar mínir. Þarna munaði litlu. Þjóðverjarnir lágu næstum því. Ansans óheppni að vinna þá ekki. Það hefði verið snilld. Þjóðhátíð hjá okkur næstu daga held ég. En jafntefli er eitthvað sem við getum verið stolt af. Þeir spiluðu ótrúlega vel og vörðust eins og geðsjúklingar. Núna erum við að fara að fá okkur vöfflur og soleis. Nammi namm. Hlakkar til.

fimmtudagur, september 04, 2003

Þreyttur.....þarna er rúmið mitt...........ohhhhhh..........sæng...........koddi...........Heiða............Gerist það mikið betra?

sunnudagur, ágúst 31, 2003

Nýtt stýrikerfi. Alltaf jafn hressandi. Windows 2000 Pro er komið upp hjá okkur. Gaman að því. Xp Pro var ekki að gera sig í restina. Tölvan var jafn hraðvirk og gamli makkinn sem ég átti í gamla daga. Mikil breyting orðin þar á. Annars vorum við að klára að þrífa sameignina. Æðislegt stuð. Alltaf jafn gaman að skúra og þurrka af. En hérna....Já. Til hamingju KR - ingar! Stelpurnar eru Íslandsmeistarar. Frábært. Samt skömm að því að sjá hvað voru fáir á vellinum. Ekki það að ég hafi farið......nei......ekki svo rosalega mikill áhugamaður um grassspynnu. Hei....djöfull eru Norðurljósamenn duglegir að segja upp fólkinu sínu. Þeir segja upp öllum þeim sem hafa verið þarna sem lengst. Fólki sem kom þessu drullukompaníi á koppinn. Vona bara að þetta fyrirtæki floppi. Engar líkur á því samt. Þeir svíkja svo mikið undan skatti að það er ekkert eðlilegt. Var ekki verið að tala um 11 milljónir um daginn? Eitthvað svoleis held ég. Ótrúlegt alveg hreint. En núna er best að hætta að rausa um svik annara. Ég ætla að skella mér í vöfflur til Kollu og Palla. Setjast í sófann þeirra og sofna. Eins og ég geri alltaf þegar ég kem í heimsókn til þeirra. Það eru álög á þessum sófa.

föstudagur, ágúst 29, 2003

Jæja....þá er þetta búið. Náði ekki öllu. Bömmer. Náði í rauninni öllu nema hlaupinu. Það sem fór með mig þar voru styrktaræfingar fyrir læri sem gerðar voru í upphitun. Ég var kominn með massa elvis í lærin í hlaupinu og þau ætluðu ekki að bera mig seinasta spölinn. Hljóp samt 2 km á 9.56 (lágmark 9.30) Skitnar djöfuls sekúndur. En svona er þetta. Ég massaði hinsvegar stöðvaæfingarnar. Þær voru ekkert mál þannig lagað. Við vorum 13 þarna og 5 voru ekki að taka þetta í fyrsta skipti þannig að maður bara reynir aftur síðar. Gaman að þessu.....

fimmtudagur, ágúst 28, 2003

Já....styttist í kvöldmat. Hawai borgara í matinn. Ekki leiðinlegt það. Ef einhver er að spá í góða tónlist þá mæli ég með VH1 storytellers með Billy Idol. Þetta er brillíant acoustic plata með bestu lögum kappans. Hann fer náttlega á kostum með töffarastælana sína. Ábyggilega margir séð myndbandið á Popp tíví. HEI!! Talandi um Popp tíví. Fjölnir Þorgeirsson var gestastjórnandi í þættinum í gær. Hann byrjaði svakalega illa einfaldlega vegna þess að Fjölnir er varla læs og soldið vitlaus, en hann skánaði þegar leið á þáttinn. Hann átti spretti. Auddi er náttlega alltaf jafn vitlaus. Maður er alveg hættur að taka hann alvarlega. Held að ég hafi aldrei gert það. Sakna Sveppa mikið. Hann heldur þessi rugli alveg uppi. Ojá...

Jæja...þá styttist í inntökuprófið....pressa...pressa...pressa. Þetta verður massíft. Það verður tekið á því. Öskrað og svitnað og djöflast og hoppað og hlaupið, svo lengi sem ég klára hverja þraut. Það er nebblega málið... Ef að ég fell einhversstaðar á leiðinni í einhverju prófinu, þá er þetta bara búið og ég get bara farið heim. Það er soldið fúlt. Þannig að það er eins gott að standa sig. Ef eitthvað klikkar, þá er ég allavega sætur, er það ekki??? Eníveis...ef þetta fer allt til fjandans þá er bara að reyna aftur. Þetta er ekki eina skiptið sem það verður haldið svona inntökupróf. Það held ég nú. Nú sit ég við tölvuna í Jordan bolnum mínum og stuttbuxum. Hmm....nenni ekki að fara í föt núorðið. Búinn að vera í fríi í viku og hef verið að hlaupa og synda. Ætli maður taki því ekki tiltölulega rólega í dag til að verða ekki alveg skemmdur á morgun. Það er nebblega byrjað kl 08:30 með upphitun og svo er bara strax tekið á því. Þannig að það er eins gott að vera vel upplagður fyrir átökin. Later.....

miðvikudagur, ágúst 27, 2003

Góðan daginn hér! Ég fór á Foo Fighters í gær í boði Bjarnarins sem á miklar þakkir skyldar fyrir svona höfðinglegt framlag. Þetta voru brjálaðir tónleikar. Fyrst komu Vínyll á svið og þeir voru fínir. Tóku meðal annars "Who gets the blame" sem er ansi fínn rokkari. Svo kom My morning jacket sem er ágætis hljómsveit frá Kentucky. Ágætir alveg hreint. Svo kom Dave Grohl á svið og allt ætlaði að verða vitlaust. Hann sagði skemmtilega sögu af því þegar þeir voru á Stokkseyri og rákust á unga hljómsveit og blablabla....Þessi unga hljómsveit steig á svið og spilaði 1 lag. Helvíti flottir. Nilfisk heita þeir. Svo komu Foo Fighters. Byrjuðu á All my life. Allt ætlaði til andskotans. Ég hef aldrei svitnað svona mikið. Það lak af mér. Það var hoppað og öskrað og henst til og frá. Þetta voru brjálaðir tónleikar. Er með strengi eftir allan flösuþeytinginn!!

Takk fyrir mig Bjössi minn....

mánudagur, ágúst 25, 2003

Þau gera ekki boð á undan sér slysin. Ef þau gerðu það, þá væri þetta nú ekkert mál. Fín lína sem allir dansa á allan daginn. Allt í einu eru menn bara dánir og maður getur ekkert gert. Sorglegt. Svona er þetta. KR rústaði Fylki í gær. Gaman að vera á vellinum. Stemmingin var alveg brjáluð. KR vann 4 - 0 eins og allir vita. Núna er ég í sumarfríi. Er að fara í inntökupróf fyrir lögregluskólann á föstudaginn næsta. Sjitt mar. Soldið stress byrjað að koma. Gaman að því. Fer þarna og geri mitt besta. Jæja...best að fara að bíða eftir að Heiða komi heim.

laugardagur, ágúst 23, 2003

Allan sólarhringinn. Rúnar Júlíusson á skilið mikið hrós fyrir að semja svona gullmola sem gjörsamlega líma sig fasta á heilann á þér og eru ekkert að fara. Það þyrfti sennilega að fjarlæga einhverjar stöðvar úr heilanum svo maður yrði heill aftur. Ég hef ekki beðið þess bætur eftir að hafa verið að raula þetta lag í allan gærdag. Þetta er magnað...

SJITT!! Það var að koma jarðskjálfti hjá okkur....og enginn smá!! 4.9 á richter var stærsti.... Fundum hann rosa vel hérna hjá okkur...Upptökin voru á Krýsuvíkursvæðinu. Fyndið þegar maður finnur jörðina skjálfa undir manni. Eitthvað svo óraunverulegt og um leið óhugnanlegt. Jæja...er ekki best að fara að sofa? Klukkan er orðin svo margt.....ég get sofið út á morgun!!! JESS!

fimmtudagur, ágúst 21, 2003

Hei. Ég er ekki góður bloggari. Allavega segir Heiða það. Ég er alveg hættur að blogga. Ótrúlegt helvíti. Ég er að fara í bíó á eftir. Djöfull er ég duglegur að vinna frímiða í bíó. Skil þetta ekki. Af hverju geta útvarpsstöðvarnar ekki gefið 10 milljónir?!?! Þá mundi ég pottþétt vinna þær vegna þess að ég næ alltaf í gegn og græði miða. Við erum að fara á Tomb Raider - Cradle of life. Held að það verði snilld. Fyrir þá tölvuleikjafíkla sem eru að lesa þetta þá mæli ég með Soldier of fortune II Double Helix Multiplayer. ALVEG MAGNAÐUR SKÍTUR! Segi það og skrifa. Ég veit að Marteinn Svanbjörnsson er sammála mér. Var að hlaupa áðan. Held að ég hafi hlaupið sirka 5 - 6 km. Ansi gott bara... Svo er bara kjúlli í matinn. Ekki er það leiðinlegt! Jæja lömbin mín.... Heyri í ykkur....endilega skrifið í gestabókina!!!!

sunnudagur, ágúst 17, 2003

Já. Ég fór á tónleikana í gær niðrí bæ. Ansi gaman alveg hreint. Þarna var DJ Galdur sem byrjaði að þeyta skífum af mikilli snilld. Svo kom Quarashi sem voru fínir. Spiluðu of fá lög. Svo kom Sálin hans Jóns míns. Hljóðið var í tómu fokki hjá þeim allan tímann. Heyrðist bara í trommunum eða í gítarnum hjá Gumma. Svo var Stebbi alltaf að hlaupa til hliðar á sviðinu til að öskra á hljóðmennina. Gaman að þessu. Svo voru Stuðmenn. Þeir voru með ansi þétt prógram og kunna að halda uppi stuði. Svo endaði þetta með ótrúlegri flugeldasýningu. Aldrei séð annað eins. Tjörvi, ef þú ert að lesa þetta, þú hefðir átt að vera Þarna. Þvílík snilld. Glumdi í öllu þegar tívolíbomburnar voru að skjótast uppúr rörunum. Og sprengingarnar..... MAÐUR LIFANDI!!! Þetta var flottasta sýning sem ég hef á ævi minni séð. Jamm.... Og svo var bara skriðið heim úr miðbænum. Ekki það að ég var drukkinn... nei nei. Það gekk bara rólega vegna fjöldans. Ansi margir í bænum að djamma....

takk og bless

fimmtudagur, ágúst 14, 2003

Sæl öllsömul. Búið að vera nóg að gera. Fer að skokka....bætir heilsu....gaman að því. Fór til Hjálmars í gærkvöldi að formata tölvuna hans. Fór aftur í kvöld að gera það sama. Nenni ekki að fara útí þá sálma....ábyggilega einhverjir sem nenna ekki að lesa um tölvur og vesen í kringum þær. Jæja....Heiða er búin að hita bólið....best að skríða uppí....

fimmtudagur, ágúst 07, 2003

Var að lesa frétt um það að bréfið frá Árna Johnsen hafi EKKI verið í þyrlunni sem lenti á þjóðhátíðinni, heldur barst það í tölvupósti til formanns þjóðhátíðarnefndar fyrr um daginn. Þetta er nú ljóta andskotans kjaftæðið. Hvað haldiði að hafi kostað að koma með þessa djöfuls þyrlu til að láta alla halda að Árni væri um borð eða eitthvað annað? Nokkrar millur þar í vaskinn..... Árni er orðinn svona dæmi eins og Keikó. Endar með því að við þurfum að reyna að venja hann af Kvíabryggju. Hann hefur það alltof gott þar. Keikó og Árni eru líka svipaðir um sig. En nóg um það..... í bili.

miðvikudagur, ágúst 06, 2003

Það er mikill missir að Jón Gnarr skuli vera hættur í útvarpi. Það var ansi gaman að hlusta á hann og Sigurjón Kjartansson. Þeir jöfnuðu hvorn annan út. Jón alveg steiktur....en Sigurjón svona soldið bakaður... Svo var Jón á Múzík 88.5 og þar var ruglið allsráðandi. Hann var meira að segja næstum því kærður fyrir barnaklám eins og margir muna kannski. En hvað um það... ábyggilega gaman að vera með útvarpsþátt á morgnana. Fá einhverja vitleysinga í viðtal og tala um allt og ekki neitt. Vera svo með vínsmökkun á föstudögum. HVAÐ ER ÞAÐ? Það er vínsmökkun í Ísland í bítið á föstudögum. Þegar klukkan er svona 9 að morgni til situr eitthvað lið uppí stúdíói Norðurljósa og er að sötra rauðvín og éta súkkulaði. Hver er tilgangurinn? Halda þau virkilega að einhver sé að horfa eða hlusta á þetta (útvarpað á Bylgjunni) og sé að taka niður punkta hvað passi með kjötinu um helgina? Nei..held ekki. Ég allavega læt mér nægja að spyrja fólkið sem er að vinna í ÁTVR um það hvaða vín það mælir með. Svo er til fínn vefur hjá Áfengis & Tóbaksverslun Ríkisins þar sem það er hægt að fræðast ágætlega um þetta. Gaman að þessu.....

þriðjudagur, ágúst 05, 2003

Langar mig að þakka miklar og góðar undirtektir á Þingvöllum þegar ég fór á kostum sem frissbí extravigansa... Þessa meistaratakta og kattliðugu stökk og snöggar hreyfingar vil ég þakka langri og strangri þjálfun í rússnesku frissbí búðunum en þar dvaldi ég frá 6 ára aldri við stanslausar kastæfingar og þarframeftir. Þjálfari minn, Staníslav Frissbjénewich, er heimsmeistari í frissbíkasti og skyrglímu. Ég er opinn fyrir því að taka fólk í einkatíma. Einungis 50.000 kall fyrir klukkutímann. Spottprís!!!

Takk og bless, eða eins og Staníslav mundi orða það.... Frisssssssssbííííííí.

sunnudagur, ágúst 03, 2003

Jæja...fólk ábyggilega orðið þreytt á því að ég sé að tala um veðrið hérna en ég get bara ekki náð uppí þessa blíðu sem er búin að vera hérna. Við fórum á Þingvelli í dag og þar var algjör steik. Tókum með okkur piknik töskuna okkar sem er ógesslega flott og við vorum með kalda pizzu og samlokur með allskonar grænmeti. Fórum svo í frissbí og það var falleg sjón. Pétur hlaupandi um allt ber að ofan. Komust færri að en vildu. Svo fórum við heim eftir 2 tíma sólbað og frissbí kast. Komum heim og ég tók mig til og þreif grillið og setti nýja steina í það. Þvílíkt duglegur. Svo grillaði ég kjúkling vafðan í beikon og penslaður með barbíkjú sósu. NAMM!! algjör snilld. Svo er bara verið að glápa á Friends og erum að klára 9 seríu. Hei...ég held að Árni Johnsen hafi verið að lenda í Eyjum á þyrlu! Hversu fokked up er það?!?!?

Var að skríða á fætur fyrir stuttu síðan. Það er að koma formúla. Annars er það eiginlega synd að vera að horfa á sjónvarpið í þessu veðri. En ég horfi allavega á startið, geri það eiginlega alltaf. Svo nenni ég ekki að horfa á meira nema einhver keyri útaf og svo hver vinnur. Annað er ekkert svo spennandi. "Naunau....hann setur hraðasta hring" "Já, hann tekur framúr" Ekki svo spennandi. Gaman að sjá menn dúndra á eitthvað eða hvorn annan. Leiðinlegt samt ef keppendur, starfsmenn eða áhorfendur slasast. Kræst...djöfull er þetta Árna Johnsen mál orðið þroskaheft. Menn að spá í að senda beint frá Kvíabryggju!!! Árni verður sennilega á stórum skjá, sitjandi í klefanum sínum í svona röndóttum fangabúningi með gítarinn sinn og lundalöppina á gítarhálsinum. Tekur slagara eins og Jailhouse rock og fleiri. Jæja... startið í formúlunni að fara að byrja.

Með sambakveðju...

laugardagur, ágúst 02, 2003

Vá! Hiti dauðans í dag. Vissi þetta. Spáði þessu í morgun. Ætti að sækja um hjá Veðurstofunni. Mundi ábyggilega standa mig betur en þessir svokölluðu veðurfræðingar. Þeir eru alltaf að spá rigningu allstaðar eins og glöggur lesandi fréttablaðsins benti svo skemmtilega á í lesenda grein sem er í fréttablaðinu í dag. Ég held að það sé til fólk sem hefur ekkert betra að gera en að setjast niður og skrifa svekkelsis bréf í fréttablaðið til að kvarta undan veðurSPÁNNI!!! Þetta er SPÁ!! Svei mér... sumt fólk sko... Fórum út í dag í góða veðrið að spóka okkur. Löbbuðum Laugarveginn á nýju Íslandsmeti, ef ekki heimsmeti. Upp og niður á 20 mín! Geri aðrir betur. Gæti verið að maður rekist á Jón Arnar Magnússon á fleygiferð á Laugaveginum að reyna að bæta þennan glæsilega tíma. Ég hefði alveg verið sáttur við fálkaorðuna fyrir afrekið. Orðan hefur nú verið veitt fyrir minna tilefni. Alltaf verið að veita hana. Menn mega ekki hripa staf á blað, þá eru þeir tilnefndir til fálkaorðunnar. Mér finnst allt í lagi að menn fái hana, eins og fyrir að bjarga mannslífum og vinna til verðlauna á Ólympíuleikum og sona. Ekki fyrir það eitt að kunna að spila á gítar og syngja t.d.

Takk fyrir mig....Ísinn var fínn....og takkóið ennþá betra.....

Ja hérna.. Magnað veður hérna í Rvík. Það var bara 21 stiga hiti í gær og stefnir í annað eins í dag. Við ákváðum að fara ekkert þessa helgina heldur vera bara heima og það virðist hafa verið fín ákvörðun. Annars skilst mér að það sé fínt veður á landinu, allavega í Eyjum þar sem 7 - 8000 manns eru þar að keppast við að vera sem fyllst. Hef aldrei farið á þjóðhátíð í Eyjum. Það er ábyggilega opplevelse útaf fyrir sig. Ég hef hinsvegar farið á Neistaflug á Neskaupsstað. Það var gaman. En allavega... Hvar sem þú, lesandi góður, ert niðurkominn á landinu þá vona ég að það verði sól hjá þér um helgina!

Takk og bless.

fimmtudagur, júlí 31, 2003

Sæl og bless. Nú er allt að gerast hérna hjá okkur í heimasíðum. Við erum komin með nýja síðu sem verður sameiginleg og þar verður nú aldeilis stuð. Hvet ég alla til að kíkja sem langoftast á hana.

hmmm.... halló

nafn: pétur

kyn: karlmaður

skap: Loðið

 
 

eclipse