laugardagur, nóvember 29, 2003
Sæl og bless. Eins og þið hafið eflaust tekið eftir hef ég ekki verið með öllum mjalla uppá síðkastið. Röflandi um allan andskotann. But NO MORE!! Eða jú annars. Ég mun halda áfram að röfla. You can bet your ASS on that!!
fimmtudagur, nóvember 27, 2003
Allt er þegar þrennt er. Ég ákvað að blogga hér í þriðja skiptið í dag bara til þess að blogga í 3 skipti á sama deginum. Þar með set ég met hjá mér sem ég á aldrei eftir að slá. Ekki nema ég veikist aftur svona skemmtilega og þurfi að hanga heima. Það er ekkert voða gaman að hanga heima. Þeir sem hafa það reynt geta kinkað kolli. Held nú að ansi margir séu að kinka kolli núna. Harrý og Heimir eru snilld. Ég er svo heppinn að eiga rúmlega 40 þætti á mp3 formi. Þetta fær ósjaldan að hljóma í tölvugræjunum mínum. Þeir sem ekki hafa hlustað á þetta....só sorrí....held að þetta finnist ekki á mörgum stöðum. En ef þið eruð alveg að deyja úr forvitni þá getiði kíkt í heimsókn og hlustað á þetta með mér. Við gætum gert soldið úr heimsókninni og poppað og sona. Það væri nú gaman. Ég nenni ekki að glápa meira á vídjó. Kominn með nett ógeð. Bara nett. Held að þetta líði hjá. Vona það allavega. Ef ekki þá verð ég að leita læknishjálpar.
Já...það er hressandi að rasa út um eitthvað sem maður hefur ekki hundsvit á. Eins og til dæmis stjórnmál. Þess vegna hef ég ákveðið að gera sem minnst af því að tala um stjórnmál. Enda finnst mér þau ekki skemmtilegt umræðuefni. Stundum getur maður bara ekki hamið sig. Ég hef samt ákveðið að hemja mig ennfrekar. Held bara að ég skelli mér í vinnuna á morgun. Er orðinn mun hressari en ég hef verið uppá síðkastið. Held barasta að ég sé orðinn hitalaus og allt. Sem er gott. Þennan bata á ég henni Heiðu að þakka. Hún er búin að hugsa svo vel um mig á meðan ég var lasinn. Hún hugsar nú barasta alltaf vel um mann, ég þarf ekkert að vera veikur til þess. Selska. Jæja...er ekki best að glápa á eina mynd í viðbót til að toppa þetta vídjógláp. Var að enda við að horfa á Event Horizon. Þvílíkur djöfuls viðbjóður. VÍHÚ!!!
Alltaf gott að fara í sturtu. Sérstaklega þegar maður þvær af sér veikindin. Ég gerði það nebblega áðan. Þvoði þetta helvíti af mér bara. Hei...ef þið hafið ekkert betra að gera, þá skuluð þið endilega kíkja á Alþingi sem er í sjónvarpinu á morgnana. Þar geta orðið snarpar umræður um allan andskotann. Eins og til dæmis ritskoðun hjá RÚV. Það er sko spennandi. Geir Horköggull kom í pontu, skeit á sig og settist síðan niður. Fáum einhverja aðra en Sjálfstæðisflokkinn til að stjórna þessum klaka. Mig langar að sjá hlutina breytast. Kannski getur einhver annar flokkur staðið sig betur. Ef ekki, þá skal ég glaður kjósa Sjálfstæðisflokkinn aftur til starfa. Mig langar bara að gefa öðrum sjéns. Það eiga allir að vera með. Getum við ekki bara verið með svona scramble fyrirkomulag? Eftir einhvern X tíma þá tekur annar flokkur við og svo koll af kolli. Þá fá allir að prófa og fólk getur séð hverjir standa sig best. Þá líka leggja allir sig meira fram til að öðlast vinsældir og virðingu hjá almúganum sem hefur seinasta orðið með það hver fer með stjórnina í þessu landi. Það finnst mér gleymast stundum, hverjir það eru sem ákveða það hverjir eru kosnir. Öllum andskotanum er lofað fyrir kosningar, svo er allt gleymt þegar það er búið að kjósa þessa rykföllnu kalla til valda. Þeir halda ábyggilega að við munum ekki neitt. Og það er tilfellið. Sömu gömul pappakassarnir eru kosnir aftur og aftur og aftur og aftur. Og hvað gerir þorri þjóðarinnar næstu kosningar? Hlustar á þessa kalla skíta með munninum og kýs þá svo aftur til valda. Takk fyrir það....
miðvikudagur, nóvember 26, 2003
Búinn að glápa á margar myndir í veikindum mínum. Má þar nefna Signs, Below og Amazon women on the moon. Allt fínar myndir og finnst mér byrjunaratriðið í A.W.O.T.M. ótrúlega fyndið. Mæli með að þið tékkið á því. Farið á næstu vídjóleigu og leigið þessa mynd. Annars er ég bara ennþá með hita og kvef og hósta og beinverki og allt. Ótrúlega gaman. Bíð spenntur eftir næsta flensukasti. Það er líka svo gaman að skiptast á að vera skítkalt og sjóðandi heitt. Gæti ekki hugsað mér að eyða dögunum öðruvísi. Finn ekkert skemmtilegt á netinu til að gera... Mér leiðist...
þriðjudagur, nóvember 25, 2003
Sæl öllsömul. Hvað er á seyði? Nú ligg ég hér heima og er með 39 stiga hita. Það er sko stuð. Einnig er ég uppfullur af kvefi og það virðist ekki ælta að hætta að renna úr nefinu á mér. Ég hringdi í Loreal og spurði útí anti skæl sjampó fyrir kalla. Ég fékk þau svör að gerðar voru rannsóknir á árunum 65 - 76 og leiddu þær í ljós að skæl eða flasa eins og það heitir á okkar ástkæra ylhýra, var mjög algeng á meðal karlmanna. Var þá ákveðið að ekki skyldi framleitt sjampó öðruvísi en það innihéldi efni sem væri flösu fyrirbyggjandi. Ég þakkaði pent fyrir mig og lagði á. Eftir þessar fréttir ákvað ég að kaupa héðan í frá ekkert sjampó heldur nota bara bílasápuna frá Autowax. Eðal sápa sem inniheldur engin flösuefni og ekki nóg með það heldur glansar skallinn á mér miklu meira eftir að ég byrjaði að nota þessa frábæru sápu. Takk fyrir mig...
laugardagur, nóvember 22, 2003
Eða eitthvað. Af hverju eru öll karla sjampó flösusjampó? Eru allir karlmenn í heiminum með flösu? Það hlýtur að vera. Allavega virðist ekki vera hægt að kaupa homme sjampó án þess að það sé anti mjalla sjampó. Þess vegna nota ég alltaf mjallar bón fyrir hárið á mér. Það virkar. Var að dyravarðast í gær. Mikið stuð og allir á rassgatinu. Alveg magnað hvað fólk getur innbyrgt mikið magn af áfengi og staðið í lappirnar. Frekar rólegt kvöld samt fyrir utan einn sem reyndi að lemja okkur dyraverðina. Hann hefði betur sleppt því bara. Fékk ókeypis flugferð í boði Heimisson airlines beint út um dyrnar.
laugardagur, nóvember 15, 2003
Fór á ball í gær á Nasa. Rosa stuð og slatti af eldra fólki að dansa. Alltaf gaman að fylgjast með fólki þegar það er að dansa. Sumir eru með rosalega skrýtnar hreyfingar og þeim virðist vera lífsins ómögulegt að halda takti. Svo eru aðrir sem gera þetta ágætlega. Vorum nú ekki lengi á ballinu. Fórum um 2 leytið heim. Svo er bíó í kvöld. Mystic River heitir myndin og ég veit EKKERT um hana. Sem er svosem ágætt. Svo er ég að spila ROSALEGAN leik í augnablikinu fyrir þá sem hafa áhuga á soleis. Call of duty heitir hann og hef ég sjaldan spilað jafn intense leik eins og þennan. Tékkið á honum þeir sem spila soleis leiki....mæli með honum hikstalaust!
föstudagur, nóvember 14, 2003
Fór á uppistand í gær. Massa gaman. Steinn Ármann var þarna og var fjandi fyndinn. Á undan honum voru 2 aðrir gaurar sem voru góðir líka. Ég og Gunnar Örn skemmtum okkur konunglega. Svo er nú eitt. Ég er alltaf að vinna einhverja miða. Uppistandið var ókeypis, vann miða á það. Svo er ég að fara á ball með Bítlavinafélaginu á eftir, það er einnig ókeypis. Svo er bíó á morgun, sem ég borga ekki krónu fyrir. Allt er þetta í boði Rásar 2. Mætti halda að ég ynni þarna. En það er nú ekki þannig. Ætli staffið fái ekki fullt af miðum? Eins og allir kaupa grænmeti, en ég fæ alltaf fullt af því líka, ókeypis. Magnað helvíti...
fimmtudagur, nóvember 13, 2003
And I know it aches
How your heart it breaks
You can only take so much
Walk on
Walk on
Home
Hard to know what it is
If you never had one
Home
I can't say where it is
But I know I'm going
Home
That's where the hurt is
þriðjudagur, nóvember 11, 2003
Það er gaman að því. Gríninu sko... Laddi er fyndinn. Sérstaklega sem grínverjinn. Er að hlusta á hann. Mikið gaman, mikið grín. Djöfull er þetta alltaf ferskt. Maður hlær alltaf jafn mikið að þessu rugli. Ætli Laddi verði einhverntíma talinn ófyndinn? Held ekki. Dagurinn var fínn í dag. Svosem nóg að gera og allt gekk bara vel. Djöfull eru upphitaðar pulsur vondar! Ég setti þær í örbylgjuna og viti menn....BANG!!! Þær sprungu í tætlur! Þær voru ekki góðar á bragðið en niður fóru þær. Hressandi.... Prófið þetta einhverntíma. Borðið eitthvað ógeðslegt og finnið hvernig það smakkast. Látið mig svo vita hvað það var sem þið borðuðuð.
mánudagur, nóvember 10, 2003
Jæja...þá er maður aftur kominn í dyrnar. Byrjaður að vinna sem dyravörður á næsta bar. Ansi fínt bara...massa rólegur staður. Eina sem maður gerir er að hjálpa sauðdrukknu fólki út og henda gaurum út sem reyna að stela bjór af krananum. Mikið af þotuliðinu sem sækir þennan stað og það er bara gaman. Svo er meira að segja bannað að syngja þarna og bannað að taka myndir og ekki nein tónlist spiluð. Það er soldið fyndið. En fólk virðist fíla það að geta komið og kjaftað og þambað bjór og þarf ekki að öskra yfir háværa tónlist. Jájá... Meira að segja Gísli Marteinn mætti á svæðið og ég var mikið að spá í að bjóða honum kaffi og hálfmána, kannski kleinur. Hann er svo vinalegur að maður bara getur ekki annað. Var búinn kl 6 bæði kvöldin. Soldið seint en sona er þetta. Fólk virðist nenna að sitja alveg ótrúlega lengi eftir að búið er að loka. Það er nebblega lokað kl 4 en fólk spáir ekkert í það. Alveg sama þó svo maður hækki ljósin eða bara hreinlega slökkvi þau. Fólk situr sem fastast. Þá næ ég í kylfuna mína og táragasið, fylli salinn af táragasi, læt svo höggin dynja á fólkinu........nei.........djók..........
fimmtudagur, nóvember 06, 2003
Gúddag! mmm...fiskur með karrý er fjandi fínn. Skemmir ekki að hafa hrísgrjón með. Helvíti langar mig að sjá Matrix revolutions. Hún er ábyggilega geðveik. Finnst samt að Matrix hefði bara átt að vera ein mynd. Fyrsta var svo geðveik og rosaleg að Wachowski bræður hefðu bara átt að hætta eftir hana. En hvað veit ég...? Langar í kaffi...kannski fæ ég mér....Langar í 200 milljónir.....kannski fæ ég mér...
mánudagur, nóvember 03, 2003
Komið sæl. Mikið vatn hefur nú runnið til sjávar síðan ég skrifaði hugrenningar mínar hingað. Við fórum til Hornafjarðar um helgina og vorum viðstödd þegar HP opnaði nýtt og stórglæsilegt hús. Svo voru þeir að kaupa nýjan trukk, ógeðslega flottan Iveco Stralis og mig langar ekkert smá að prófa hann! Svo fórum við á árshátíð sem var snilld. Æðislegur matur og skemmtilegt ball með Dansi á rósum. Menn voru í rosalegu stuði svo ekki sé meira sagt. Svo skriðum við heim á sunnudaginn og gekk það bara vel. Rosalega flott norðurljós sem við sáum á Mýrdalssandi. Keyrðum svo framhjá bílnum sem ég skildi eftir á Vík. Förum ekki nánar útí það. Kíkið á bloggið hennar Heiðu til að fá nánari útskýringar. HEI! Þegar við vorum á leiðinni heim þá var landsleikur í gangi. Ísland - Pólland og við hlökkuðum ekkert lítið til að hlusta á hann í útvarpinu. EN NEI!!!! Honum var ekki líst!!! Bara í sjónvarpinu! Hversu mikið mál hefði það verið að dúndra einum fréttamanni á leikinn og láta hann lýsa þessu fyrir það fólk sem var ekki fyrir framan imbann?!?!?!? Djöfuls drullukompaní!!! RÚV getur tekið þessi afnotagjöld og troðið þeim uppí rassgatið á Markúsi Erni!!! Og hafiði það...
|
|
nafn: pétur
kyn: karlmaður
skap: Loðið
|