[ Dagbókin hans Pésa ]

 

sunnudagur, ágúst 31, 2003

Nýtt stýrikerfi. Alltaf jafn hressandi. Windows 2000 Pro er komið upp hjá okkur. Gaman að því. Xp Pro var ekki að gera sig í restina. Tölvan var jafn hraðvirk og gamli makkinn sem ég átti í gamla daga. Mikil breyting orðin þar á. Annars vorum við að klára að þrífa sameignina. Æðislegt stuð. Alltaf jafn gaman að skúra og þurrka af. En hérna....Já. Til hamingju KR - ingar! Stelpurnar eru Íslandsmeistarar. Frábært. Samt skömm að því að sjá hvað voru fáir á vellinum. Ekki það að ég hafi farið......nei......ekki svo rosalega mikill áhugamaður um grassspynnu. Hei....djöfull eru Norðurljósamenn duglegir að segja upp fólkinu sínu. Þeir segja upp öllum þeim sem hafa verið þarna sem lengst. Fólki sem kom þessu drullukompaníi á koppinn. Vona bara að þetta fyrirtæki floppi. Engar líkur á því samt. Þeir svíkja svo mikið undan skatti að það er ekkert eðlilegt. Var ekki verið að tala um 11 milljónir um daginn? Eitthvað svoleis held ég. Ótrúlegt alveg hreint. En núna er best að hætta að rausa um svik annara. Ég ætla að skella mér í vöfflur til Kollu og Palla. Setjast í sófann þeirra og sofna. Eins og ég geri alltaf þegar ég kem í heimsókn til þeirra. Það eru álög á þessum sófa.

föstudagur, ágúst 29, 2003

Jæja....þá er þetta búið. Náði ekki öllu. Bömmer. Náði í rauninni öllu nema hlaupinu. Það sem fór með mig þar voru styrktaræfingar fyrir læri sem gerðar voru í upphitun. Ég var kominn með massa elvis í lærin í hlaupinu og þau ætluðu ekki að bera mig seinasta spölinn. Hljóp samt 2 km á 9.56 (lágmark 9.30) Skitnar djöfuls sekúndur. En svona er þetta. Ég massaði hinsvegar stöðvaæfingarnar. Þær voru ekkert mál þannig lagað. Við vorum 13 þarna og 5 voru ekki að taka þetta í fyrsta skipti þannig að maður bara reynir aftur síðar. Gaman að þessu.....

fimmtudagur, ágúst 28, 2003

Já....styttist í kvöldmat. Hawai borgara í matinn. Ekki leiðinlegt það. Ef einhver er að spá í góða tónlist þá mæli ég með VH1 storytellers með Billy Idol. Þetta er brillíant acoustic plata með bestu lögum kappans. Hann fer náttlega á kostum með töffarastælana sína. Ábyggilega margir séð myndbandið á Popp tíví. HEI!! Talandi um Popp tíví. Fjölnir Þorgeirsson var gestastjórnandi í þættinum í gær. Hann byrjaði svakalega illa einfaldlega vegna þess að Fjölnir er varla læs og soldið vitlaus, en hann skánaði þegar leið á þáttinn. Hann átti spretti. Auddi er náttlega alltaf jafn vitlaus. Maður er alveg hættur að taka hann alvarlega. Held að ég hafi aldrei gert það. Sakna Sveppa mikið. Hann heldur þessi rugli alveg uppi. Ojá...

Jæja...þá styttist í inntökuprófið....pressa...pressa...pressa. Þetta verður massíft. Það verður tekið á því. Öskrað og svitnað og djöflast og hoppað og hlaupið, svo lengi sem ég klára hverja þraut. Það er nebblega málið... Ef að ég fell einhversstaðar á leiðinni í einhverju prófinu, þá er þetta bara búið og ég get bara farið heim. Það er soldið fúlt. Þannig að það er eins gott að standa sig. Ef eitthvað klikkar, þá er ég allavega sætur, er það ekki??? Eníveis...ef þetta fer allt til fjandans þá er bara að reyna aftur. Þetta er ekki eina skiptið sem það verður haldið svona inntökupróf. Það held ég nú. Nú sit ég við tölvuna í Jordan bolnum mínum og stuttbuxum. Hmm....nenni ekki að fara í föt núorðið. Búinn að vera í fríi í viku og hef verið að hlaupa og synda. Ætli maður taki því ekki tiltölulega rólega í dag til að verða ekki alveg skemmdur á morgun. Það er nebblega byrjað kl 08:30 með upphitun og svo er bara strax tekið á því. Þannig að það er eins gott að vera vel upplagður fyrir átökin. Later.....

miðvikudagur, ágúst 27, 2003

Góðan daginn hér! Ég fór á Foo Fighters í gær í boði Bjarnarins sem á miklar þakkir skyldar fyrir svona höfðinglegt framlag. Þetta voru brjálaðir tónleikar. Fyrst komu Vínyll á svið og þeir voru fínir. Tóku meðal annars "Who gets the blame" sem er ansi fínn rokkari. Svo kom My morning jacket sem er ágætis hljómsveit frá Kentucky. Ágætir alveg hreint. Svo kom Dave Grohl á svið og allt ætlaði að verða vitlaust. Hann sagði skemmtilega sögu af því þegar þeir voru á Stokkseyri og rákust á unga hljómsveit og blablabla....Þessi unga hljómsveit steig á svið og spilaði 1 lag. Helvíti flottir. Nilfisk heita þeir. Svo komu Foo Fighters. Byrjuðu á All my life. Allt ætlaði til andskotans. Ég hef aldrei svitnað svona mikið. Það lak af mér. Það var hoppað og öskrað og henst til og frá. Þetta voru brjálaðir tónleikar. Er með strengi eftir allan flösuþeytinginn!!

Takk fyrir mig Bjössi minn....

mánudagur, ágúst 25, 2003

Þau gera ekki boð á undan sér slysin. Ef þau gerðu það, þá væri þetta nú ekkert mál. Fín lína sem allir dansa á allan daginn. Allt í einu eru menn bara dánir og maður getur ekkert gert. Sorglegt. Svona er þetta. KR rústaði Fylki í gær. Gaman að vera á vellinum. Stemmingin var alveg brjáluð. KR vann 4 - 0 eins og allir vita. Núna er ég í sumarfríi. Er að fara í inntökupróf fyrir lögregluskólann á föstudaginn næsta. Sjitt mar. Soldið stress byrjað að koma. Gaman að því. Fer þarna og geri mitt besta. Jæja...best að fara að bíða eftir að Heiða komi heim.

laugardagur, ágúst 23, 2003

Allan sólarhringinn. Rúnar Júlíusson á skilið mikið hrós fyrir að semja svona gullmola sem gjörsamlega líma sig fasta á heilann á þér og eru ekkert að fara. Það þyrfti sennilega að fjarlæga einhverjar stöðvar úr heilanum svo maður yrði heill aftur. Ég hef ekki beðið þess bætur eftir að hafa verið að raula þetta lag í allan gærdag. Þetta er magnað...

SJITT!! Það var að koma jarðskjálfti hjá okkur....og enginn smá!! 4.9 á richter var stærsti.... Fundum hann rosa vel hérna hjá okkur...Upptökin voru á Krýsuvíkursvæðinu. Fyndið þegar maður finnur jörðina skjálfa undir manni. Eitthvað svo óraunverulegt og um leið óhugnanlegt. Jæja...er ekki best að fara að sofa? Klukkan er orðin svo margt.....ég get sofið út á morgun!!! JESS!

fimmtudagur, ágúst 21, 2003

Hei. Ég er ekki góður bloggari. Allavega segir Heiða það. Ég er alveg hættur að blogga. Ótrúlegt helvíti. Ég er að fara í bíó á eftir. Djöfull er ég duglegur að vinna frímiða í bíó. Skil þetta ekki. Af hverju geta útvarpsstöðvarnar ekki gefið 10 milljónir?!?! Þá mundi ég pottþétt vinna þær vegna þess að ég næ alltaf í gegn og græði miða. Við erum að fara á Tomb Raider - Cradle of life. Held að það verði snilld. Fyrir þá tölvuleikjafíkla sem eru að lesa þetta þá mæli ég með Soldier of fortune II Double Helix Multiplayer. ALVEG MAGNAÐUR SKÍTUR! Segi það og skrifa. Ég veit að Marteinn Svanbjörnsson er sammála mér. Var að hlaupa áðan. Held að ég hafi hlaupið sirka 5 - 6 km. Ansi gott bara... Svo er bara kjúlli í matinn. Ekki er það leiðinlegt! Jæja lömbin mín.... Heyri í ykkur....endilega skrifið í gestabókina!!!!

sunnudagur, ágúst 17, 2003

Já. Ég fór á tónleikana í gær niðrí bæ. Ansi gaman alveg hreint. Þarna var DJ Galdur sem byrjaði að þeyta skífum af mikilli snilld. Svo kom Quarashi sem voru fínir. Spiluðu of fá lög. Svo kom Sálin hans Jóns míns. Hljóðið var í tómu fokki hjá þeim allan tímann. Heyrðist bara í trommunum eða í gítarnum hjá Gumma. Svo var Stebbi alltaf að hlaupa til hliðar á sviðinu til að öskra á hljóðmennina. Gaman að þessu. Svo voru Stuðmenn. Þeir voru með ansi þétt prógram og kunna að halda uppi stuði. Svo endaði þetta með ótrúlegri flugeldasýningu. Aldrei séð annað eins. Tjörvi, ef þú ert að lesa þetta, þú hefðir átt að vera Þarna. Þvílík snilld. Glumdi í öllu þegar tívolíbomburnar voru að skjótast uppúr rörunum. Og sprengingarnar..... MAÐUR LIFANDI!!! Þetta var flottasta sýning sem ég hef á ævi minni séð. Jamm.... Og svo var bara skriðið heim úr miðbænum. Ekki það að ég var drukkinn... nei nei. Það gekk bara rólega vegna fjöldans. Ansi margir í bænum að djamma....

takk og bless

fimmtudagur, ágúst 14, 2003

Sæl öllsömul. Búið að vera nóg að gera. Fer að skokka....bætir heilsu....gaman að því. Fór til Hjálmars í gærkvöldi að formata tölvuna hans. Fór aftur í kvöld að gera það sama. Nenni ekki að fara útí þá sálma....ábyggilega einhverjir sem nenna ekki að lesa um tölvur og vesen í kringum þær. Jæja....Heiða er búin að hita bólið....best að skríða uppí....

fimmtudagur, ágúst 07, 2003

Var að lesa frétt um það að bréfið frá Árna Johnsen hafi EKKI verið í þyrlunni sem lenti á þjóðhátíðinni, heldur barst það í tölvupósti til formanns þjóðhátíðarnefndar fyrr um daginn. Þetta er nú ljóta andskotans kjaftæðið. Hvað haldiði að hafi kostað að koma með þessa djöfuls þyrlu til að láta alla halda að Árni væri um borð eða eitthvað annað? Nokkrar millur þar í vaskinn..... Árni er orðinn svona dæmi eins og Keikó. Endar með því að við þurfum að reyna að venja hann af Kvíabryggju. Hann hefur það alltof gott þar. Keikó og Árni eru líka svipaðir um sig. En nóg um það..... í bili.

miðvikudagur, ágúst 06, 2003

Það er mikill missir að Jón Gnarr skuli vera hættur í útvarpi. Það var ansi gaman að hlusta á hann og Sigurjón Kjartansson. Þeir jöfnuðu hvorn annan út. Jón alveg steiktur....en Sigurjón svona soldið bakaður... Svo var Jón á Múzík 88.5 og þar var ruglið allsráðandi. Hann var meira að segja næstum því kærður fyrir barnaklám eins og margir muna kannski. En hvað um það... ábyggilega gaman að vera með útvarpsþátt á morgnana. Fá einhverja vitleysinga í viðtal og tala um allt og ekki neitt. Vera svo með vínsmökkun á föstudögum. HVAÐ ER ÞAÐ? Það er vínsmökkun í Ísland í bítið á föstudögum. Þegar klukkan er svona 9 að morgni til situr eitthvað lið uppí stúdíói Norðurljósa og er að sötra rauðvín og éta súkkulaði. Hver er tilgangurinn? Halda þau virkilega að einhver sé að horfa eða hlusta á þetta (útvarpað á Bylgjunni) og sé að taka niður punkta hvað passi með kjötinu um helgina? Nei..held ekki. Ég allavega læt mér nægja að spyrja fólkið sem er að vinna í ÁTVR um það hvaða vín það mælir með. Svo er til fínn vefur hjá Áfengis & Tóbaksverslun Ríkisins þar sem það er hægt að fræðast ágætlega um þetta. Gaman að þessu.....

þriðjudagur, ágúst 05, 2003

Langar mig að þakka miklar og góðar undirtektir á Þingvöllum þegar ég fór á kostum sem frissbí extravigansa... Þessa meistaratakta og kattliðugu stökk og snöggar hreyfingar vil ég þakka langri og strangri þjálfun í rússnesku frissbí búðunum en þar dvaldi ég frá 6 ára aldri við stanslausar kastæfingar og þarframeftir. Þjálfari minn, Staníslav Frissbjénewich, er heimsmeistari í frissbíkasti og skyrglímu. Ég er opinn fyrir því að taka fólk í einkatíma. Einungis 50.000 kall fyrir klukkutímann. Spottprís!!!

Takk og bless, eða eins og Staníslav mundi orða það.... Frisssssssssbííííííí.

sunnudagur, ágúst 03, 2003

Jæja...fólk ábyggilega orðið þreytt á því að ég sé að tala um veðrið hérna en ég get bara ekki náð uppí þessa blíðu sem er búin að vera hérna. Við fórum á Þingvelli í dag og þar var algjör steik. Tókum með okkur piknik töskuna okkar sem er ógesslega flott og við vorum með kalda pizzu og samlokur með allskonar grænmeti. Fórum svo í frissbí og það var falleg sjón. Pétur hlaupandi um allt ber að ofan. Komust færri að en vildu. Svo fórum við heim eftir 2 tíma sólbað og frissbí kast. Komum heim og ég tók mig til og þreif grillið og setti nýja steina í það. Þvílíkt duglegur. Svo grillaði ég kjúkling vafðan í beikon og penslaður með barbíkjú sósu. NAMM!! algjör snilld. Svo er bara verið að glápa á Friends og erum að klára 9 seríu. Hei...ég held að Árni Johnsen hafi verið að lenda í Eyjum á þyrlu! Hversu fokked up er það?!?!?

Var að skríða á fætur fyrir stuttu síðan. Það er að koma formúla. Annars er það eiginlega synd að vera að horfa á sjónvarpið í þessu veðri. En ég horfi allavega á startið, geri það eiginlega alltaf. Svo nenni ég ekki að horfa á meira nema einhver keyri útaf og svo hver vinnur. Annað er ekkert svo spennandi. "Naunau....hann setur hraðasta hring" "Já, hann tekur framúr" Ekki svo spennandi. Gaman að sjá menn dúndra á eitthvað eða hvorn annan. Leiðinlegt samt ef keppendur, starfsmenn eða áhorfendur slasast. Kræst...djöfull er þetta Árna Johnsen mál orðið þroskaheft. Menn að spá í að senda beint frá Kvíabryggju!!! Árni verður sennilega á stórum skjá, sitjandi í klefanum sínum í svona röndóttum fangabúningi með gítarinn sinn og lundalöppina á gítarhálsinum. Tekur slagara eins og Jailhouse rock og fleiri. Jæja... startið í formúlunni að fara að byrja.

Með sambakveðju...

laugardagur, ágúst 02, 2003

Vá! Hiti dauðans í dag. Vissi þetta. Spáði þessu í morgun. Ætti að sækja um hjá Veðurstofunni. Mundi ábyggilega standa mig betur en þessir svokölluðu veðurfræðingar. Þeir eru alltaf að spá rigningu allstaðar eins og glöggur lesandi fréttablaðsins benti svo skemmtilega á í lesenda grein sem er í fréttablaðinu í dag. Ég held að það sé til fólk sem hefur ekkert betra að gera en að setjast niður og skrifa svekkelsis bréf í fréttablaðið til að kvarta undan veðurSPÁNNI!!! Þetta er SPÁ!! Svei mér... sumt fólk sko... Fórum út í dag í góða veðrið að spóka okkur. Löbbuðum Laugarveginn á nýju Íslandsmeti, ef ekki heimsmeti. Upp og niður á 20 mín! Geri aðrir betur. Gæti verið að maður rekist á Jón Arnar Magnússon á fleygiferð á Laugaveginum að reyna að bæta þennan glæsilega tíma. Ég hefði alveg verið sáttur við fálkaorðuna fyrir afrekið. Orðan hefur nú verið veitt fyrir minna tilefni. Alltaf verið að veita hana. Menn mega ekki hripa staf á blað, þá eru þeir tilnefndir til fálkaorðunnar. Mér finnst allt í lagi að menn fái hana, eins og fyrir að bjarga mannslífum og vinna til verðlauna á Ólympíuleikum og sona. Ekki fyrir það eitt að kunna að spila á gítar og syngja t.d.

Takk fyrir mig....Ísinn var fínn....og takkóið ennþá betra.....

Ja hérna.. Magnað veður hérna í Rvík. Það var bara 21 stiga hiti í gær og stefnir í annað eins í dag. Við ákváðum að fara ekkert þessa helgina heldur vera bara heima og það virðist hafa verið fín ákvörðun. Annars skilst mér að það sé fínt veður á landinu, allavega í Eyjum þar sem 7 - 8000 manns eru þar að keppast við að vera sem fyllst. Hef aldrei farið á þjóðhátíð í Eyjum. Það er ábyggilega opplevelse útaf fyrir sig. Ég hef hinsvegar farið á Neistaflug á Neskaupsstað. Það var gaman. En allavega... Hvar sem þú, lesandi góður, ert niðurkominn á landinu þá vona ég að það verði sól hjá þér um helgina!

Takk og bless.

nafn: pétur

kyn: karlmaður

skap: Loðið

 
 

eclipse