[ Dagbókin hans Pésa ]

 

miðvikudagur, október 29, 2003

Að ég hef ákveðið að halda áfram að skrifa hérna inn. Viðbrögðin hafa verið mjög góð við atkvæðagreiðslunni. Fólk hefur verið mjög duglegt að senda inn hvatningarorð. Kransar og blómvendir eru afþakkaðir en þeir sem vilja gefa eitthvað er bent á Samtök bloggara með ritstíflu eða SBMR. Held að ég sé farinn að missa vitið. Ég er farinn að fíla lagið Hey ya með Outkast. Þoldi það ekki fyrst en djöfull venst það. Það verður stuð um helgina hjá mér og Heiðu. Við erum að fara austur á árshátíð hjá HP. Það verður massa gaman. Verið að fara að opna nýtt hús og allt. LIFI BYLTINGIN!!!

þriðjudagur, október 28, 2003

Uss...ég er alltof latur við að skrifa hingað inn. Á maður að vera að þessu helvíti? Er einhver sem nennir að sitja við skjáinn og lesa þetta? Æji...ég veit það ekki. Ég vil bara fá atkvæðagreiðslu hérna.

föstudagur, október 24, 2003

Var að glápa á þetta áðan. Ansi fínt bara. Gaman að Bubba. Og náttlega gaman að hlusta á fólk syngja vel. Ég segi að Kalli og MA gellan fari áfram. Held að það sé ekki spurning. Hei! Djöfull er ég orðinn þreyttur á Bónus hrásalati. Það er tilboð á þessum viðbjóði núna í Bónus, 99 kr dósin, og þetta mokast gjörsamlega út!!! Fólk virðist missa vitið um leið og eitthvað kostar lítið. Ég er viss um það ef maður myndi frysta skjaldbökuskít og selja sem dýrindis dessert frá miðausturlöndum, láta dósina kosta svona 50 kall, þá myndi fólk kaupa þetta í bílförmum og ég myndi græða helling. Þá er það ákveðið. Ég hringi í einhvern skjaldbökubónda á morgun og fæ hann til að safna skít fyrir mig. Eruð þið nokkuð með númer hjá einum soleis? Látið mig endilega vita.

sunnudagur, október 19, 2003

Gaman að sjá hvað fólk hefur verið duglegt að kommenta uppá síðkastið. Sýnir mannir að það er einhver að lesa þetta kjaftæði sem vellur uppúr manni. Fór að djamma í gær. Kannski ekki frásögu færandi nema það að ég kom heim kl 5:30 sem er fjandi seint fyrir mig. Ég hef aldrei tollað svona lengi á djamminu. Og ég var meira að segja drekkandi Kaftein Morgan. Það er alveg ótrúlegt. Þetta er svona þegar við félagarnir Bjarni og ég tökum okkur saman og skellum okkur á djammið. Jón Atli var einnig með í för og hann átti fína spretti. Skelltum okkur oní bæ kl 2 eftir að hafa horft á snilldarmyndir eins "Hurðin" "Kappar í klandri" og "Body Count". Að ógleymdum 911 talsettum þáttum þar sem Gunnar Örn og Pétur nokkur Heimisson fara á kostum í hlutverkum slasaðra og uppdópaðra bandaríkjamanna. Hlógum eins og brjálæðingar. En hvað um það....Mættum á Viktor og fórum að dansa úr okkur allt vit. Það var massa gaman. Vorum þar meira og minna allt kvöldið. Svo var bara farið heim um HÁLF SEX!!! Sofnaði eins og steinn og vaknaði ferskur kl 11. Reis úr rekkju og át myglaðar pulsur og flatt diet pepsi. Gerist ekki betra. Bíð svo hér eftir minni heittelskuðu sem er á leiðinni heim frá Hornafirði. Mig hlakkar svo til að faðma hana og knúsa hana og kyssa hana og.... Eins og Guðjón Rúdofl orðaði það: "Kari kari kari kari konan mín, kari konan mín, kari konan min? Kari kari kari kari konan mín, hún var hér í gær." Góðar stundir.

laugardagur, október 18, 2003

Einmitt núna er ég að hlusta á eitt skelfilegasta lag sem samið hefur verið. Fagra litla diskódís. Þetta er alveg svakalegt. "'Ó litla diskódís, því færðu gæsahúð, og verður köld sem ís, er sérðu plötusnúð?" Þvílík textasnilld. Held að þetta lag hafi verið kosið leiðinlegasta lag sem samið hefur verið. Það var kosning á Rás 2 einhverntíma. Tékkið á þessu lagi. Hei...og líka 3 tonn af sandi. Það er brillíant. Áfram Jón Arnór!! Hann er að massa NBA deildina. Skoraði 6 stig um daginn og var með 5 stoðsendingar. Það er kúl.

föstudagur, október 17, 2003

Ég þekki einn strák sem var ansi heppinn seinustu nótt. Hann lenti í bílveltu. Ekki að það sé einhver heppni, heldur var hann heppinn að því leyti að hann er til frásagnar um hana. Guði sé lof. Mér skilst að það hafi verið rolla á veginum. Réttast væri að þessi búfénaður væri réttdræpur á lausagangi við þjóðveginn. En því er víst ekki að heilsa. Og verður sennilega aldrei að heilsa. Ég þoli ekki rollur og hef aldrei þolað þær.

mánudagur, október 13, 2003

Mig dreymdi massa skrýtinn draum um daginn. Það rigndi loftsteinum í Nesjahverfinu. Ekki veit ég hvað þetta þýðir. En skrýtið var það. Djöfull vælir þetta lið í Survivor. Kannski að maður myndi væla svona sjálfur. Ég veit það ekki. Mér finnst líka svo skrýtið að þetta er alltaf svipað í öllum seríunum. Maður hafði haldið að fyrsta serían yrði svona væl og leiðindi. Svo væri valið fólk í næstu seríu og allir búnir að sjá hvað þetta gengur útá. Byggja skjól, verða sér úti um mat og framvegis. En nei...alltaf grenjar fólk yfir því hvað það sé mikið af skordýrum eða hvað það er svangt og allir ömurlegir. Aumingjar...

laugardagur, október 11, 2003

Þá er það á hreinu...best að copy peista þetta svo það líti út fyrir að maður sé voða duglegur að blogga!!! :D

fimmtudagur, október 09, 2003

Sæl og bless. Djöfull er mér ill í hálsinum! Alltaf gott að kyngja svona. En hvað um það...Heiða gaf mér sítrónute...það var voða gott.

Sæl og bless. Djöfull er mér ill í hálsinum! Alltaf gott að kyngja svona. En hvað um það...Heiða gaf mér sítrónute...það var voða gott.

þriðjudagur, október 07, 2003

Er gott. Það var í matinn í kvöld. Og smá svona sósa með. Spagettísósa. Þetta klikkar ekki. FÓG! Fljótlegt, ódýrt og gott. Svo er fínt að fá sér smá kaffi. Annars er lítið að frétta frá mér. Er með svaka fína hálsbólgu sem er alltaf jafnhressandi. Jæja...best að fara að skrifa eitthvað af þessum bíómyndum sem maður er alltaf að lóda....

nafn: pétur

kyn: karlmaður

skap: Loðið

 
 

eclipse